BÚIÐ AÐ "JARÐA" ALLT SEM "BENSI FRÆNDI" HEFUR VERIÐ AÐ BULLA....

Það eina sem er eftir er að ESB fái formlegt dánarvottorð.  Svo það er ekkert eftir annað en að losa sig við hann og helst ríkisstjórnina eins og hún leggur sig.  Enda siglir þessi ríkisstjórn hraðbyri í kjölfar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Gunnarsstaða Móra, með það að verða sú versta í lýðveldissögunni og er þá mikið sagt.  Svo voru það stór mistök að mynda þetta "ríkisstjórnaróbermi".  Það sem átti að gera var að láta hina starfstjórnina sitja til vorsins (síðasta) og kjósa aftur í vor.  Þá hefði þjóðin losnað við að ýmsir "pótintátar",sem nú eru á þingi, hefðu farið þar inn. 


mbl.is Berskjaldaðri fyrir spákaupmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála, enda er spurning, hvort þessi stjórnarnefna geti lifað út árið eða tvö. Ég segi nú kannske ekki, að hún sé eitthvað lík Jóhönnustjórninni, en ekki er hún góð. Svo mikið er víst. Ég hef verið sömu skoðunar og þú, að það hefði verið vitið meira, að láta stjórn Sigurðar Inga sitja fram á þetta vor og kjósa þá, enda var Sigurður ekki sem verstur forsætisráðherra, Bjarni svo sem ekki heldur, en það hefði verið betra, ef Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið í minnihlutastjórn fram á vor. Þeir hefðu vel getað gert það. Ég er líka sannfærð um það, að ef Rúv hefði ekki verið að lemja þetta sífellt á Sigmundi Davíð, þá hefði stjórnin getað lifað til þessa vors, eins og hún lagði sig með Sigmund í oddvitasætinu. Við skulum bara segja, að Rúv beri mesta ábyrgðina á þessarri stjórnarónefnu, og hvernig komið er málum hér á landi núna, því að þetta er allt saman hægt að skrifa á reikning Sovétfréttastofu Rúv. Ég sé heldur ekki fram á, að þessi stjórnarómynd lifi lengi, og vona það líka. Þetta gengur ekki svona lengur, finnst mér. Ekki varðandi Rúv heldur. Mál er að linni.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 28.6.2017 kl. 15:19

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Skrifa 100% upp á hvert einasta orð hjá þér, Guðbjörg Snot og þakka þér fyrir innlitið og skeleggan og góðan málflutning.

Jóhann Elíasson, 28.6.2017 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband