ENDA EINI RAUNHÆFI KOSTURINN......

Það væri verið að gefa ansi skrítið fordæmi, með því að samþykkja það að ef menn fá ekki þau störf sem sóst er eftir AÐ ÞÁ SÉ BARA HÆGT AÐ FARA Í MÁL VIÐ VINNUVEITANDANN.  Sjálfsagt finnst öllum, sem sækja um starf, að þeir séu hæfastir til að sinna viðkomandi starfi, en það eru aðrir sem meta það....


mbl.is Kröfum Jóhannesar og Ástráðs vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ansi skrítið fordæmi að stjórnskipuð nefnd sem hefur það hlutverk að velja hæfustu einstaklingana er hundsuð til að ráðherra geti sett sína gæðinga í störf sem aðrir hafa verið metnir hæfari til að sinna. Þessháttar einkavinavæðing hefur lengi verið löstur á Íslensku stjórnkerfi. Og það á að vera eitt af hlutverkum dómstóla að verja almenning fyrir þessháttar misbeitingu pólitíkusanna á valdi sínu. Ætli þessi héraðsdómari hafi skuldað ráðherranum greiða?

Jós.T. (IP-tala skráð) 7.7.2017 kl. 15:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jón Steinsson (Jós.T.), enn ferð þú með tómt kjaftæði og fleipur.  Þessi nefnd hefur EKKI það hlutverk að VELJA hæfustu einstaklingana í verkið heldur að benda á þá einstaklinga, sem hún telur hæfasta.  Á ÞESSU ER REGINMUNUR.  Það var alveg eftir ykkur "Vinstri mönnunum" að koma með einhver "skítakomment" varðandi þetta mál...........

Jóhann Elíasson, 7.7.2017 kl. 15:52

3 identicon

12. gr. Umsögn dómnefndar og skipun dómara.
Dómnefnd lætur ráðherra í té skriflega og rökstudda umsögn um umsækjendur um embætti dómara. Í umsögn dómnefndar skal tekin afstaða til þess hvaða umsækjandi sé hæfastur til að hljóta embættið...... Óheimilt er að skipa í dómaraembætti mann sem dómnefnd hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda,....

Tilgangurinn með því að skipa dómnefnd og láta hana velja hæfustu einstaklingana var að koma í veg fyrir að ráðherrar væru að skipa eftir flokkslínum og vinfengi eins og hafði verið í mörgum embættisveitingum og gafst ekki vel. Þessi skipun ráðherra eftir flokkslínum og vinfengi er því afturför og augljóslega ekki í anda laganna og eftir vilja löggjafans. Slakur lesskilningur þinn, hægri öfgastefna og fáfræði breytir engu þar um.

Jós.T. (IP-tala skráð) 7.7.2017 kl. 19:12

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jón Steinsson (Jós. T.), Það virðist ekki vera að VINSTRIÖFGASTEFNA gefi neitt eftir og þú hefur sýnt alveg óhemju mikla fáfræði í þínum kommentum og ef ekki reynist betur þá hefur þú reynt að ljúga þig út úr hlutunum... undecided

Jóhann Elíasson, 7.7.2017 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband