ÞETTA ER EKKERT SEM KEMUR Á ÓVART EN ÞAÐ KOM Á ÓVART AÐ ÞESSI FLOKKUR SKYLDI EKKI NÁ INN MANNI Í KOSNINGUNUM.

Þess í stað setti fólk traust sitt á handónýta flokka eins og Viðreisn og Bjarta Framtíð, sem hafa reynst landi og þjóð VERRI EN ENGINN á yfirstandandi kjörtímabili.  Og það kemur á óvart að LANDRÁÐAFYLKINGIN skuli bæta við sig fylgi og auðvitað er spurningin ÚT Á HVAÐ?????


mbl.is Stærri en BF og Viðreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er Dagur B Eggertsson sem sópar að sér fylginu.

Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 26.7.2017 kl. 00:51

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, heldurðu það...... cool

Jóhann Elíasson, 26.7.2017 kl. 04:11

3 identicon

 Ég er sammála ykkur báðum. Það er furðulegt, að Samfó skuli fá þó þetta fylgi, þótt það veki líka athygli, að fylgið rokkar til og frá, upp og niður. Dagur hefur töluvert persónufylgi, - því miður, vildi ég segja, því að framkoma hans og hans félaga gagnvart okkur borgarbúum verðskuldar það alls ekki. Ég stend samt fast á þeirri kenningu minni, að Dagur megi þakka fyrir, ef hann kemst einn inn. Hjálmar á ekki sjens. Það er víst áreiðanlegt, eins og hann hefur hagað sér. Fjarri því. Að Viðreisn skuli vera komin niðurfyrir viðmiðunarmörk, segi ég, að stafi af þessarri eilífu þvælu og rugli í Bensa um krónuna og fleira í þeim dúr, fyrir utan sjávarútvegsfrumvarpið, sem nýtur lítillar hylli. BF á sér varla viðreisnar von úr þessu, enda máttu Óttar og kó alveg segja sér það, að það var lítið til vinsældar fallið að klessa sig svona upp við Bensa og hans lið. Þetta fá þeir fyrir vikið. Það verður samt fróðlegt að vita, hvort skoðanakannanirnar líta svona út, þegar farið verður að mæla fylgið við flokkana í sveitastjórnunum. Ég held líka, að Sjálfstæðismenn þurfi að vanda sig vel við uppstillingu á borgarstjórnarlista sínum. Á því veltur, hvernig þeim gengur í kosningunum sjálfum. Mest er um vert, að Degi og kompaníi verði komið frá völdum hérna í borginni, áður en þeir eyðileggja borgina alveg. Mál er að linni.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 26.7.2017 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband