EITT ER VÍST - RÍKISSTJÓRNARFÆÐING VERÐUR MJÖÖÖÖÖÖGG ERFIÐ

En því miður virðist vera að Alþingi þurfi að sitja uppi með Smára McCarthy í eitt kjörtímabil enn, en á móti kemur að það eru nokkrar líkur á STUTTU KJÖRTÍMABILI.  "En fátt er er svo með öllu illt að ei boði gott", það er nokkuð öruggt að Birgitta verður ekki ráðherra.  Einhver sigurviss vinstri maður vildi meina að maður ætti að líta bjartsýnn fram á veginn og brosa.  Hann brosir sennilega hringinn í dag... wink


mbl.is Ríkisstjórnin tapar 12 þingsætum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Réttsýni

Sé ekki að það verði svo erfitt að mynda stjórn. VG, Samfylking, Framsókn og Píratar fara létt með það. 

Réttsýni, 29.10.2017 kl. 10:28

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg greinilegt "Réttsýnn" (ég er nú ekkert sérstaklega fyrir hugleysingja, sem ekki hafa kjark til að koma fram undir nafni) að við erum ALLS ekki á sama máli.

Jóhann Elíasson, 29.10.2017 kl. 12:09

3 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Jóhann, en hvað með xd og xb + klónana xc og exem, finnst þér það líkleg?

Jónas Ómar Snorrason, 29.10.2017 kl. 14:01

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Af því sem kom út úr þessum bull kosningum, þá sýnist mér að Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur, Framsóknarflokkur og Flokkur Fólksins væri besta útspilið.

Vonandi láta menn ekki egóið stjórna sér, heldur reini að vinna saman fyrir fólkið í landinu.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 29.10.2017 kl. 15:11

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Algjörlega sammála því nafni.

Kveðja af Suðurnesjunum.

Jóhann Elíasson, 29.10.2017 kl. 15:28

6 Smámynd: Egill Vondi

Spurningin er bara hvort miðjuflokkarnir lesi það sama úr spilunum og sumir, að þessi kosning var ósk um vinstristjórn. Erfitt gæti verið að styðja Sjálfstæðisflokk til stjórnar eftir að hann missti fimm þingmenn. Þó missti hann einungis 3.8% atkvæða.

Ef D+M+B hefðu fengið einn mann í viðbót væri þetta lítið mál, en þeir fengu bara 31 alls. Þó að það megi segja að fullveldissinnaðir flokkar séu sterkari miðað við heildarþingsæti, er sameining BF við Samfylkingu styrking líka.

Það besta í stöðuni væri stjórnarkreppa og nýjar kosningar.

Egill Vondi, 29.10.2017 kl. 15:50

7 Smámynd: Egill Vondi

Það besta í stöðuni væri stjórnarkreppa og nýjar kosningar.

Ef miðju flokkarnir ná ekki samkomulagi við Sjálfstæðisflokk, þá er það besta í stöðuni stjórnarkreppa og nýjar kosningar, átti þetta að vera.

 

 

Egill Vondi, 29.10.2017 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband