OG ÉG SEM HAFÐI TRÚ Á AÐ ÞESSIR MENN VÆRU SÆMILEGA SKYNSAMIR!!!

En vonandi sjá þeir að sér í tíma???  Það er svo "gróin" í sálarlíf sumra VG liða, andúð, gamlar "kreddur" og HATUR á Sjálfstæðisflokknum, að stjórnarsamstarf kemur ekki til greina.  Á meðan þessir gömlu kommatittir eins og Svavar Gestson, Gunnarsstaða Móri,Svandís Svavarsdóttir og fleiri draga andann og halda nokkurn veginn "andlegri heilsu", verður þetta stjórnarmynstur aldrei samþykkt í grasrótinni margumtöluðu.  Þetta fólk tekur persónulegt HATUR umfram þjóðarhag.....


mbl.is Telja línur skýrast í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held nú, að það megi fleiri hugsa sinn gang í þeim efnum en vinstra liðið, eins og t.d. Sigurður Ingi gagnvart Sigmundi Davíð, ef hann vill ekki missa formannsstólinn undan sér, því að mér heyrist margir flokksmenn hans vera orðnir nokkuð þreyttir á ýfingum hans í garð Sigmundar og láta það og þessar einkennilegu skoðanir hans varðandi ríkisstjórnir standa í vegi fyrir því, að þeir tveir geti setið saman í stjórn. Sigurður Ingi má því passa sig líka. Kjósendur voru heldur ekki að biðja um neina háskattastjórn í kosningunum, enda gaf útkoman úr þeim það greinilega í skyn, og að fólk vildi halda í þá lágskattastjórn, sem kom til valda hérna 2013, en var trufluð í miðju verki. Rúvarar og fjölmiðlamenn ættu svo að halda sig sem lengst í burtu frá þessu fólki og vera ekki að sletta sér fram í það, sem þeim kemur ekki við. Það getur aldrei komið neitt gott út úr slíkri afskiptasemi. Það höfum við séð áður, enda eiga fréttamenn að sinna fréttamennsku en ekki pólitík. Þeir geta boðið sig fram til þings, ef þeir vilja taka þátt í pólitík, láta slíkt annars í friði og pólitíkusana sömuleiðis. Bjarni og aðrir flokksleiðtogar eru alveg einfærir um að búa til ríkisstjórnir án afskipta og þátttöku fjölmiðlamanna, finnst mér.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 10.11.2017 kl. 10:12

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er alveg rétt hjá þér með hann Sigurð Inga en þetta er mest áberandi með vinstra liðið.

Jóhann Elíasson, 10.11.2017 kl. 11:22

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Mér þykir það harla undarlegt ef Sjálfstæðir og Framsókn ætli að leiða Steingrím J. og Svandísi Svavars til sætis í Stjórnarráðinu.

Tómas Ibsen Halldórsson, 10.11.2017 kl. 11:36

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kannski er það undarlegast ef D og B finnst það þess virði að "fórna" forsætisráðherraembættinu fyrir þessa "tálsýn", Tómas.

Jóhann Elíasson, 10.11.2017 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband