HVAÐ ER KARLLÆGT VIÐHORF????

Getur ekki verið að þessi umræða sé komin AÐEINS út af sporinu???  Síður en svo er ég að gera lítið úr KYNFERÐISLEGRI ÁREITNI og síður en svo er ég að mæla henni bót á nokkurn hátt.  En síðustu vikur hefur komið fram þvílíkur fjöldi af ásökunum um kynferðislega áreitni og jafnvel nauðganir og um leið eru lýsingar á karlmönnum þannig að ekki verður séð að nokkrum karlmanni sé óhætt að láta sjá sig utandyra án þess að eiga það á hættu að verða úthrópaður og jafnvel að hellt verði yfir hann tjöru og fiðri.  En það hefur enginn haft fyrir því að segja HVERNIG KYNFERÐISLEG ÁREITNI ER SKILGREIND og hvernig karlmenn EIGI að koma fram við konur svo samskipti kynjanna verði "eðlileg" og menn eigi ekki von á að fá yfir sig ákæru um kynferðislega áreitni, jafnvel mörgum áratugum eftir meintan atburð........


mbl.is „Dómarinn vill munnmök að launum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Já, það er orðið vandlifað - fyrir bæði konur og karla.  En óneitanlega laumast að manni sá grunur að konur hafi sjálfar komið körlunum á bragðið... :)

Kolbrún Hilmars, 15.11.2017 kl. 14:45

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég sem karlmaður má EKKI segja það sem þú sagðir :).  En það er víst aldrei öðrum aðilanum að kenna þegar tveir deila.  Þurfa báðir aðilar ekki að skoða samskipti sín?

Jóhann Elíasson, 15.11.2017 kl. 15:14

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ég er alls ekki viss um að ég megi það heldur! En það er áberandi í umræðunni að konur á framabraut (í samkeppni við kynsystur) eru fremstar í hópi. Segi svo ekki meir...

Kolbrún Hilmars, 15.11.2017 kl. 15:19

4 identicon

Sæll Jóhann.

Held að flestir hljóti að vera komnir með
þetta orðalag á hreint hvort heldur í bókmenntum
sbr. Biblíuna og Íslendingasögurnar eða allt annað yfirleitt, -
en hvað með kvenlæg viðhorf?(!)

Húsari. (IP-tala skráð) 16.11.2017 kl. 01:16

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Með karllægum viðhorfum karlarnir

kerlur æsa´ upp sínar,

unz verða þeir kappar karlægir,

þá kerlinga-áhuginn dvínar.

 

Jón Valur Jensson, 16.11.2017 kl. 02:26

6 identicon

Það sem átt er við um karlæg viðhorf, eru sennilega viðhorf sem birtast ansi oft á þessari bloggsíðu þinni Jóhann.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 16.11.2017 kl. 08:31

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

"Ferkantaði Leðurhausinn" er með þetta..... laughingcool

Jóhann Elíasson, 16.11.2017 kl. 08:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband