EKKERT SEM KEMUR Á ÓVART ÞARNA - ÞESSIR ÞRÍR FLOKKAR HALDA BARA ÁFRAM MEÐ PÓLITÍSKT "HARAKIRI"

Eiginlega kemur það svolítið á óvart að Bjarni Benediktsson skuli enn eina ferðina leggjast "marflatur" undir "Vinstra Liðið" og núna til þess að "bjarga" PÓLITÍSKUM FERLI Katrínar Jakobsdóttur.  Það er honum "lífsnauðsyn" að komast í ríkisstjórn núna en það er vandséð að þetta útspil geri nokkuð fyrir pólitískan feril hans, nema síður sé.  En Sigurður Ingi er STÓRI TAPARINN í þessu sjónarspili öllu saman.  Vegna óvildar sinnar, í garð Sigmundar Davíðs,  þrjósku og einstrengingsháttar, er hann að sjá til þess að Framsóknarflokkurinn allt að því þurrkast út af korti stjórnmálanna og hann getur endanlega kvatt sviðið sjálfur.  Bjarni Benediktsson hefur "bjargað" pólitískum ferli Katrínar Jakobsdóttur í bili en VG er ekki búið að bíta úr nálinni með því að fara í þetta stjórnarsamstarf ennþá og ber titringurinn í VG, síðustu daga glöggt merki um það.  En því miður er dapurlegt að sjá að þeir sem yfirgefa VG eru að fara úr öskunni í eldinn með því að ganga til liðs við LANDRÁÐFYLKINGUNA..........


mbl.is 11 ráðherra stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Gíslason

Er nú Simma fólkið að gráta yfir því að Simmi verður hugsanlega ekki ráðherra. Hvernig væri að gefa út bók "Simmi ráðherra" :)

Ómar Gíslason, 18.11.2017 kl. 22:04

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei, ekki frekar en þessir bjánar sem eru í stjórnarmyndunarviðræðum núna.  Heldur þú virkilega Ómar að þetta lið komi sér saman um eitthvað????????

Jóhann Elíasson, 19.11.2017 kl. 00:14

3 identicon

Þeir verða að hækka skatta hljóta koma sér saman um það því það kostar að fjölga í ráðherraliðinu um 100 milljónir á ári:)

Baldvin Nielsen

B.N. (IP-tala skráð) 19.11.2017 kl. 01:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband