AÐ SJÁLFSÖGÐU ÞARF AÐ ENDURSKOÐA LÍFEYRISSJÓÐAKERFIÐ!!!!!

En ekki á þeim forsendum að LÆKKA greiðslur atvinnurekenda því þær greiðslur eru hluti af umsömdum launakjörum OG ÞAR AF ER ÞAÐ ALVEG ÓTRÚLEGT AÐ ATVINNUREKENDUR HAFI, Í KRAFTI ÞESS AÐ ÞEIR GREIÐI SVO MIKIÐ Í LÍFEYRISSJÓÐINA, SEST Í STJÓRNIR ÞEIRRA OG Í FLESTUM EÐA ÖLLUM TILFELLUM HAFA ÞEIR "HIRT" STJÓRNARFORMENNSKUNA. Sannleikurinn er að atvinnurekendur greiða EKKI EINA EINUSTU KRÓNU Í LÍFEYRISSJÓÐINA, þarna er um að ræða SAMNINGSBUNDINN HLUTA AF LAUNAKJÖRUNUM.  Mjög góð grein um "lífeyrissjóðasukkið" birtist í bændablaðinu 5 október síðastliðinn og hvet ég fólk til að fara á "netið" bbl.is og lesa hana.....


mbl.is Endurskoða ætti lífeyrissjóðakerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Það þarf að blása til herferðar á landsvísu til að koma atvinnurekendum burt úr lífeyrissjóðunum og breyta þeim úr vogunarsjóðum í 1 stóran líferyrisjóð. 

Hrossabrestur, 7.12.2017 kl. 11:28

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hverju orði sannara.  En þetta virðist ekki vera nógu og "krassandi" málefni og selur ekki nóg til að það fái nokkra athygli, eins og t.d #metoo.......

Jóhann Elíasson, 7.12.2017 kl. 11:54

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Einfaldast væri að setja lífeyrissjóðina einfaldlega í slitameðferð og leysa þá upp en svo ákveðum við bara sjálf í hverju við fjárfestum okkar eigin lífeyrissparnað.

Svo dæmi sé tekið voru sjóðfélagar í þremur lífeyrissjóðum aldrei spurðir álits um hvort ætti að henda milljörðum af sparnaði þeirra í ónýta eiturspúandi kísilmálverksmiðju sem er núna gjaldþrota, en ef þeir hefðu sjálfir fengið að ráðstafa sínu eigin fé eru hverfandi líkur á að neinum þeirra hefði dottið í hug svo galin ráðstöfun sem raun ber vitni.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.12.2017 kl. 13:01

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það að hver sjái um sinn lífeyrissjóð er að mínu mati góð hugmynd og sennilegt er að með því næði fólk betri ávöxtun á sinn lífeyrissjóð....

Jóhann Elíasson, 7.12.2017 kl. 13:20

5 identicon

 Einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn, og iðgjöld verði séreign hvers og eins, eftirstöðvar greiðist ú við andlát.            10% iðgjöld, atvinnurekandi 6% launþegi 4%, sjóðurinn láni sjóðsfélögum til íbúðarkaupa, með 2% raunávöstun, og fjáresti í ríkisskuldabréfum eingöngu.                                                                                                     Núverandi kerfi er fullkomlega galið, og hægt að spara ca. 20-25 miljarða, með að  hafa einn lífeyrissóð.                      Núverandi kerfi hlýtur að brjóta gegn 72.gr Stjórnarskrárinnar. Eignarétturinn er fryðhelgur, á þetta þarf að láta reina á sem fyrst.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 7.12.2017 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband