"HÁTT BYLUR Í TÓMRI TUNNU"......

Þá erum við búin að fá að sjá hvernig þingmenn LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR ætla að haga gagnrýni sinni á Alþingi og á vettvangi fjölmiðla, í stjórnarandstöðu sinni á komandi kjörtímabili.  Fyrst kemur talíbaninn, sem er formaður flokksins, gjammandi fram í þegar Fjármálráðherra, var í ræðustól Alþingis.  Og svo kemur annar þingmaður flokksins fram í "Silfrinu" í dag og var með upphróp og dónaskap í dag.  Framganga þingmanna þessa flokks er ekki til að auka virðingu Alþingis en því miður virðist það vera að svona öfgavinstralið virðist vera að höfða til einhverra og hægt er að segja með vissu "að síðasti vitleysingurinn er ekki fæddur".......


mbl.is „Feginn að þú ert ekki forstjóri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Satt segirðu. Ekki tekur betra við í borgarstjórninni, þegar jólasveinar Samfó fara að tjá sig um málin þar. Hjálmar gæti allt að eins talað kínversku eins og íslensku. Það er stundum ómögulegt að vita né skilja, hvað maðurinn er að fara með mali sínu, enda þolir ekki nokkur maður að heyra á hann minnst lengur. Ég á heldur ekki von á því, að hann eigi sjans á að komast inn aftur. Ég er alveg undrandi á því, að fimmtán prósent kjósenda skuli styðja þetta lið, og er að vona, að skoðanakannanir sýni annað, þegar farið verður að kanna hug kjósenda í væntanlegum borgarstjórnar- og sveitastjórnakosningum að vori komanda. Það ballið hlýtur að fara að byrja bráðum, og verður vit í því eða hitt þó, hefði ég haldið. Þessi borgarstjórnarnefna hérna hefur að vísu ansi mikið persónufylgi miðað við hvernig hann hagar sér gagnvart kjósendum sínum og borgarbúum, enda skilur enginn í þessu mikla persónufylgi hans. Það eru allir að vona, að það reytist af honum, þegar á líður. Það er því sama á hvorn staðinn maður kemur varðandi framkomu þessa fólks gagnvart kjósendum og andstæðingum sínum í pólitík, Alþingi eða Ráðhúsið, hvað framkomu og framgöngu þessa Samfóliðs snertir. Það er allt á eina bókina lært í þeim efnum hjá þeim. Nú er bara að vona, að kjósendur hafi vitið meira og séu ekki að kjósa þetta ömurlega lið aftur til forystu í borginni. Annars færi allt í kaldakol hérna, og nóg er nú ástandið slæmt samt. Því miður verður maður að segja.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 17.12.2017 kl. 17:40

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mikið óskaplega erum við sammála núna Guðbjörg Snót.  Mér ofbauð alveg dónaskapurinn, rangfærslurnar og "gjammið" í ÁGÁ í Silfrinu í dag og ef þetta á að vera uppistaðan í stjórnarandstöðu LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR, get ég ekki ímyndað mér að það verði mikil fylgisaukningin við flokkinn.  Ef fylgisaukning verður þá hef ég OFMETIÐ gáfnafar kjósenda nokkuð mikið......

Jóhann Elíasson, 17.12.2017 kl. 22:43

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Við eigum að þakka fyrir að Samfó hefur ekki betra fólk en þetta til að vera forsvarsmenn Samfó. þetta er ein bezta auglýsing fyrir alla aðra flokka.

Ég get ekki ímyndað mér að það verði margir sem kjósa Samfó eftir að lesa, hlusta og horfa á þessa forsvarsfólk Samfó.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 18.12.2017 kl. 03:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband