SVONA LAGAÐ SANNAR ÞAÐ BARA AÐ ÞETTA FÓLK HEFUR ENGA ÞEKKINGU Á VIRÐISAUKASKATTINUM EÐA HVERNIG FRAMKVÆMDIN ER

Þegar stjórnmálamenn koma með svona "popúlistatillögur" er full ástæða til að skoða málið aðeins nánar.  Tökum bækurnar sem dæmi:  Um daginn fór ég í búð og þar voru hlið við hlið tvær bækur, önnur þeirra var þýdd kilja og var verðið á henni 4.600 krónur hin var erlend kilja og kostaði hún 915 krónur.  Sú þýdda var rúmlega fimm sinnum dýrari en sú erlenda, reyndar skal það viðurkennt að sú þýdda var mun eigulegri enda var sú erlenda um Mourhinio.  Verð þessara bóka er þannig að sú þýdda kostar 4.144 krónur án virðisaukaskatts en sú erlenda kostar 824 krónur án virðisaukaskatts.  En þar með er alls ekki öll sagan sögð.  Bókaútgáfa á Íslandi er með ALLAR TEKJUR sínar í LÆGRA virðisaukaskattsþrepinu (11%, sem er útskattsprósentan) en ALLUR KOSTNAÐURINN er í HÆRRA virðisaukaskattsþrepinu (24%, sem er innskattsprósentan).  Og svo til að auka þennan mun enn meira eru afskaplega fáir launamenn innan bókaútgáfunnar, þar eru flestir sem vinna við hana VERKTAKAR og ofan á verktakalaunin leggst 24% virðisaukaskattur sem bókaútgáfan fær síðar greiddan sem innskatt.  Þannig að þegar upp er staðið þá fær bókaútgáfan á hverju ári endurgreiddan virðisaukaskatt SVO SKIPTIR TUGUM MILLJÓNUM króna.  Svo er spurningin hvort ESA myndi ekki túlka þetta sem ólöglegan ríkisstyrk við eina atvinnugrein.  En svo aftur að tillögunni um að fella niður virðisaukaskattinn af bókum og einhverju fleiru sem telst til menningar.  ALLAR þessar greinar eru með tekjur í lægra þrepinu og kostnað í því hærra en með því að FELLA NIÐUR virðisaukaskattinn á þessum greinum ERU ÞÆR EKKI LENGUR Í VIRÐISAUKASKATTSKERFINU OG FÁ HELDUR EKKI NEINN INNSKATT ÚTGREIDDAN.  OG ÞANNIG VERÐUR SKAÐINN AF ÞESSARI NIÐURFELLINGU VIRÐISAUKASKATTS Á ÞESSAR GREINAR MEIRI EN ÁBATINN,FYRIR ÞÆR.....


mbl.is Ágætis stuðningur við málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, og gleðilega jólarest.

Mér finnst þú skrifa frétt, ekki datt mér þetta í hug, sérstaklega líka vegna þess að ég hreinlega vissi þetta ekki!

En mér dettur í hug að sósalistar á Íslandi séu að hygla sínu fólki?

En hvað um það, þá hlýtur ríkið að hagnast eitthvað?

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 28.12.2017 kl. 22:00

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Blessaður Helgi og sömuleiðis gleðilega jólarest.

Það er nú heila málið að það eru alls ekki margir sem gera sér grein fyrir þessu.  Þess vegna segi ég að þingmenn HALDA að þeir séu að gera eitthvað gott en þeir virðast ekki gera sér grein fyrir því að ÖLL mál hafa að minnsta kosti TVÆR hliðar og sum mun fleiri.

Eins og þú kannski veist, þá er ég að vinna verkefni  og gögnin sem ég hef undir höndum og hef verið að vinna úr í rúmt ár leiða ýmislegt í ljós sem mig hafði ekki GRUNAÐ eða gert ráð fyrir í mínum villtustu draumum. Sósialistar koma ALLS EKKI TIL MEÐ AÐ HAGNAST NEITT Á ÞESSARI RÁÐSTÖFUN, ÞVERT Á MÓTI TAPA ÞEIR.  Jú ríkið hættir að greiða þeim innskatt og að því leyti hagnast það....

Jóhann Elíasson, 29.12.2017 kl. 00:12

3 Smámynd: Ómar Gíslason

Virðisaukaskattskerfið í dag er grautmyglað og þar stendur ekki stein yfir steini. Best væri að allir væru með sömu prósentu.

Ómar Gíslason, 29.12.2017 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband