ÞETTA ER EKKI ÞJÁLFARAVANDAMÁL HELDUR VANDAMÁL HJÁ LEIKMÖNNUNUM SJÁLFUM

Það er bara þannig að það er mikið einfaldara að skella skuldinni á EINN mann (þjálfarann) en að skoða liðið í heild sinni.  Mér fannst síðasta korterið í leiknum eins og maður væri að horfa á æfingu hjá sjötta flokki en ekki að landsliðið væri að spila.  Með þannig vinnubrögðum verður ALDREI hægt að nálgast hinn raunverulega vanda og við sitjum endalaust uppi með lið sem hefur ekki möguleika á að gera nokkurn skapaðan hlut.  Það verður ekki annað séð en að Geir Sveinsson hafi yfirhöfuð bara staðið sig ágætlega þó vissulega sé eitt og annað í hans störfum sem sé hægt að gagnrýna, en það er nú bara þannig að það þykjast ALLIR vita hvað hefði verð best að gera.  Persónulega er ég á því að hann hefði átt að nota Róbert Gunnarsson á línunni, því línan var augljóslega vandamál hjá liðinu.  En svona er endalaust hægt að spá en það þýðir ekkert að segja EF og HEFÐI - þetta fór bara svona og því verður ekki breitt.


mbl.is „Það verður að skipta um þjálfara“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Sú staðreynd að íslenska liðið spilaði vel 40 fyrstu mínúturnar af þeim 180 mínútum sem liðið fékk að spila, bendir til að vandamálið sé fyrst og fremst lélegt form leikmanna. Í hraðri íþróttagrein eins og handbolta er úthald algjört lykilatriði og okkar menn virtust vera sprungnir á limminu í leikjunum gegn Króatíu og Serbíu.

Theódór Norðkvist, 17.1.2018 kl. 20:04

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef bloggað um það áður að ég efast stórlega um að líkamlegt form leikmanna sé í lagi og svo held ég að það væri ekki svo vitlaust að kalla Jóhann Inga til að "krukka" aðeins í hausnum á strákunum.  Ég held að Geir Sveinsson sé saklaus af þessum skandal.

Jóhann Elíasson, 18.1.2018 kl. 08:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband