EINA RÁÐIÐ ER AÐ HEFJA BARA LOKUNARAÐGERÐIR

Reykjanesbrautin er orðin stórhættuleg og því ætti hún bara að vera opin þegar veður og skyggni er gott og í björtu, því þrátt fyrir að lýsing hafi verið sett upp þá er ekki kveikt á henni vegna sparnaðar.  Nú birtir ört þannig að óhætt ætti að vera að hafa hana opna frá klukkan 08:00 - 20:00  og ætti þetta að gilda þar til viðunnandi framkvæmdir hafa verið gerðar og svo enn frekari lokanir þegar rigning er og eitthvað að veðri...........


mbl.is Eins og rússnesk rúlletta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmgeir Guðmundsson

Ég fer að jafnaði nokkrum sinnum í mánuði um Reykjanesbrautina, en hef sem betur fer sloppið við að lenda í þessum stórhættulegu aðstæðum. Að vísu kemur fyrir að það sé hálka en það gerist á öðrum vegum líka. Auðvitað ætti að klára að tvöfalda veginn og gerist vonandi fljótlega og vonandi verður lagt nýtt malbikslag enn fyrr, það er hlutur af eðlilegu viðhaldi. Ég skildi hins vegar aldrei það uppátæki að setja ljósastaura meðfram veginum, líklega var það gert í þeirri von að þá þyrfti ekki að tvöfalda veginn. En hvergi annars staðar hef ég séð upplýstan veg um óbyggðu landsvæði. 

Hólmgeir Guðmundsson, 21.1.2018 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband