ÞESSU "VINSTRA LIÐI" ER EKKI VIÐBJARGANDI

Það skiptir þessu "hrægammaliði" ekki nokkru máli þó þarna sé um að ræða þann ráðherra, sem hefur unnið einna best fyrir þjóðina, heldur er hún ekki úr "þeirra röðum" og þeir fundu þarna veikan blett á henni og á þessum "bletti" skal hamast og djöflast þótt þeir geri ekki neitt annað og skaðinn verði mikill fyrir þjóðina. Fær fólk aldrei nóg af þessum vitleysingum?????  Það virðist ekki vera því þessir vesalingar eru kosnir á þing trekk í trekk.....


mbl.is Markmiðið að koma ráðherranum frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skúli Bergmann

Með ólíkindum, ég er löngu búin að fá nóg.

Skúli Bergmann, 23.1.2018 kl. 12:50

2 identicon

Þetta er nú farið að líkjast helst einelti hjá honum Jón Þóri. Spurning hvort Sigríður ætti ekki að segja þessa sögu á metoo.

Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 23.1.2018 kl. 13:04

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður, sumir eru haldnir meiri athyglissýki en aðrir......

Jóhann Elíasson, 23.1.2018 kl. 13:08

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Skúli, þeir eru endurtekið kosnir á þing og nýjum vitleysingum bætt við. Hvar endar þetta eiginlega???????

Jóhann Elíasson, 23.1.2018 kl. 13:10

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Er dómsmálaráðherranum við bjargandi?

Guðmundur Ásgeirsson, 23.1.2018 kl. 14:36

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er nokkuð sem bendir til annars, Guðmundur?  Kannski fer það í taugarnar á þessum vinstri "heyhausum" að hún hefur bein í nefinu og lætur ekki eitthvað móðursýkishjal örfárra hjáróma anarkista slá sig útaf laginu?

Jóhann Elíasson, 23.1.2018 kl. 15:00

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er svo sem rétt að hún hefur ekki látið neinn slá sig út af laginu í því að reyna að ljúga sig frá málinu.

En eru það þannig bein sem er æskilegt að ráðherrar hafi í sínu nefi?

Guðmundur Ásgeirsson, 23.1.2018 kl. 15:39

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef ekki séð eða heyrt neinar lygar frá henni vegna þessa máls, lygarnar hafa komið frá formann Stjórnskipunar - og Eftirlitsnefndar og fylgifiskum formannsins.

Jóhann Elíasson, 23.1.2018 kl. 16:01

9 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það er augljós málefnaskortur hjá stjórnarandstöðunni meðan þeir hafa ekki tíma til annars en níðast á dómsmálaráðherra, en það er einmitt það sem þeir gera sí og æ að herja á einn tiltekinn ráðherra og linna ekki látum fyrr en hann/hún neyðist til að segja af sér svo friður komist á á Alþingi.

Hitt sem ég vil einnig nefna. Eiga allir þeir sem sækja um störf hjá ríkinu, rétt á bótum sé þeim hafnað? Það er að verða svolítið absúrd hvernig "lögmenn" fara fram með yfirgangi fyrir það eitt að fá ekki starfið sem þeir sóttu um. Ekki skrítið að þeim hafi verið hafnað.

Tómas Ibsen Halldórsson, 23.1.2018 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband