NÚ ER "VINSTRI HJÖRÐIN" ALVEG KOMIN Í HAM OG BÚIN AÐ "VIRKJA" RÚV OG STUNDINA

Þetta lið virðist ekki hafa mikið að gera eða þá að forgangsröðunin sé sú að aðal málið sé að klekkja á Dómsmálaráðherra.  Þetta lið ætti að væla aðeins meira um að dagskrá Alþingis sé ekki tilbúin daginn fyrir fund, svo þeir geti nú sofið betur..... wink


mbl.is Bein útsending frá fundi með ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Sérfræðingurinn" Dómsmálaráðherra er nú þegar með einn dóm frá Hæstarétti fyrir sín "sérfræðistörf", Að sjálfsögðu á hann að axla ábyrgð og segja af sér vegna sinna "sérfræðistarfa".

thin (IP-tala skráð) 31.1.2018 kl. 10:56

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það þarf enginn að klekkja á dómsmálaráðherra út af þessu tiltekna máli, hún hefur alveg séð um það sjálf.

Guðmundur Ásgeirsson, 31.1.2018 kl. 12:50

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

"thin", eru það bara hægrimenn sem eiga að "axla ábyrgð" eftir hæstaréttardóma?  Þér fannst engin ásræða til að Jóhanna Sigurðardóttir né Svandís Svavarsdóttir "öxluðu ábyrgð" þegar hæstiréttur dæmdi þeim í óhag í tíð "Ríkisstjórnar Fólksins.......

Jóhann Elíasson, 31.1.2018 kl. 17:04

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur, það sem einum finnst rangt finnst öðrum rétt.  En þú hefur ekkert sagt um hvað það var sem Dómsmálaráðherra gerði sem var ekki rétt.  Ég get ekki séð að þessi "valnefnd" sé óskeikul eða geti leyft sér að tilnefna "einungis" jafnmarga hæfa til að gegna stöðu dómara og á að ráða til starfa????

Jóhann Elíasson, 31.1.2018 kl. 17:10

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Nú, grenjuðu ekki andstæðingar Jóhönnu og Svandísar um að þær ættu að segja af sér þegar dæmt var þeim í óhag?

Afhverju grenja þeir sömu ekki núna um afsögn Sigríðar eftir að dæmt hefur verið henni í óhag?

Gæti það stafað af því að sú gagnrýni byggist ekki á heiðarlegri afstöðu heldur skotgrafarpólitík?

Það væri til meira gagns ef umræða um þessi mál byggðist á staðreyndum frekar en skítkasti.

Guðmundur Ásgeirsson, 31.1.2018 kl. 17:12

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Svar við síðari athugasemdinni (nr. 4):

Ég þarf alls ekki að segja hvað það var sem dómsmálaráðherra gerði ekki rétt því Hæstiréttur er búinn að því.

Vissulega getur engin valnefnd verið óskeikul, ekki frekar en ráðherra og enn síður páfinn ef út í það er farið.

Það kom einmitt fram í dómum Hæstaréttar að niðurstaða valnefndarinnar hefði ekki heldur verið skotheld.

Meira að segja stóð Alþingi ekki heldur að afgreiðslu málsins í samræmi við lög því samkvæmt þeim hefði átt að greiða atkvæði um hvern og einn tilnefndan dómara en ekki alla fimmtán í einu lagi eins og var engu að síður gert, ólöglega.

Við sitjum því uppi með eftirfarandi niðurstöður:

    • Valnefndin vandaði ekki nógu vel til verksins og niðurstaða hennar var því ólögmæt.

    • Dómsmálaráðherra vandaði ekki heldur nógu vel til verks og niðurstaða hennar var því ólögmæt.

    • Alþingi vandaði ekki heldur nógu vel til verks og niðurstaða þess var því ólögmæt.

    • Forseti Íslands kvittaði uppá hina ólögmætu niðurstöðu athugasemdalaust, í andstöðu við lög.

    • Landsréttur er skipaður fimmtán dómurum en enginn þeirra hefur löglegt umboð til starfsins.

    Þetta er hörmuleg útkoma og leiðir til ástands sem er ekki í neinu samræmi við grundvallarreglur réttarríkisins.

    Guðmundur Ásgeirsson, 31.1.2018 kl. 17:23

    7 Smámynd: Jóhann Elíasson

    Guðmundur, ekki man ég til þess að gráturinn hafi verið jafn háær og hann er í þessu tilfelli.  Auðvitað spila pólitík inn í öll þessi viðbrögð og ég fæ ekki betur séð en að þeir sem boðuðu ný og betri vinnubrögð í þinginu séu harðastir í skotgrafahernaðinum.... undecided

    Jóhann Elíasson, 31.1.2018 kl. 18:01

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband