DÆMIGERÐUR "POPPÚLISTA ÁRÓÐUR" ..........

En þessum poppúlistaflokki er vorkunn, einhvern veginn þarf þetta lið að afla sér fylgis en það dapurlega er að þau hafa valið þá leið að gera það með með því að fara í kringum sannleikann og ná í nokkur atkvæði út á "þreytta og tætta" ESB stefnu sína, sem er löngu dauð og grafin.  Að tala þannig að KRÓNAN sem slík sé eitthvað vandamál sýnir það einna helst að hún veit sáralítið í sinn haus.  Vandamálið er efnahagsstjórnunin hér á landi eða réttara sagt STJÓRNLEYSIÐ.  Svo er líka annað sem hægt væri að velta fyrir sér;  EF SKULDIR ÞORGERÐAR KATRÍNAR OG EIGINMANNS HENNAR HEFÐU VERIÐ Í EVRUM, ÆTLI ÞÆR HEFÐU VERIÐ AFSKRIFAÐAR????????


mbl.is Krónan fín meðan þú átt hana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvað hefur þessi flokkur lagt til að verði gert til að bæta stjórn peningamála á Íslandi? Nákvæmlega ekki neitt því stefna þeirra gengur út á að afnema hana og framselja peningastjórnunarvaldið til erlends hlutafélags með höfuðstöðvar í Frankfürt sem kallar sig seðlabanka en er í raun pólitískt verkfæri erlendra ríkisstjórna.

Krónan er ekki vandamál heldur stefnuleysi og uppgjöf stjórnmálamanna fyrir því verkefni að stjórna útgáfu hennar á skynsamlegan hátt fyrir land og þjóð. Krónan sjálf hefur aldrei tekið neinar ákvarðanir um útgáfu sína hvorki góðar né slæmar, heldur er það fólkið sem stjórnar útgáfu hennar sem tekur slíkar ákvarðanir, eftir atvikum góðar eða slæmar.

Að búast við því að hið umrædda útlenska risafyrirtæki muni taka slíkar ákvarðanir með hagsmuni Íslendinga í huga er eins og að búast við því að ákvarðanir um stjórn á útgáfu krónunnar verði teknar með hagsmuni íbúa Borðeyrar í huga án tillits til hagsmuna allra annarra Íslendinga. Með öðrum orðin galin hugmyndafræði byggð á ranghugmyndum um raunveruleikann.

Ef það er ógangur í bílnum þínum lagast hann ekki með því að henda honum heldur er rétta leiðin til að laga vandamálið að stilla vélina betur á grundvelli staðreynda um virkni hennar og ætlaðrar notkunar ökutækisins. Þess vegna stillir maður vélina í fjölskyldubíl ekki á sama hátt og í kappakstursbíl því markmiðin eru einfaldlega gjörólík og ósamrýmanleg.

Guðmundur Ásgeirsson, 10.3.2018 kl. 18:04

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi flokkur hefur EKKI LAGT NEITT TIL, stefnuleysið er algjört.  Önnur málsgreinin er algjörlega í samræmi við það sem ég hef margsinnis sagt um efnahagsmálin á Íslandi og ég er sammála öllu sem þú skrifar núna Guðmundur.... wink

Jóhann Elíasson, 10.3.2018 kl. 18:23

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það hlaut að koma að því að við yrðum sammála. :)

Guðmundur Ásgeirsson, 10.3.2018 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband