ERU MENN ÞÁ LOKSINS AÐ RANKA VIÐ SÉR?????????

Nú eru menn farnir að sjá við hvers konar aðstæður þeir þurfa að búa við á byggingartíma Landspítalans.  Strax eru menn orðnir þreyttir á þessum sífelldu sprengingum og ekki bætir úr skák að bílastæðin á Landspítalanum við Hringbraut hafa verið skert verulega og allra síst máttu þau við því (enginn veit hvað sá tími verður langur, þó svo að áætlanir séu til en menn þekkja það hversu vel áætlanir standast).  Og kannski er farið að skoða allt þetta í samhengi? En menn virðast aldrei hafa skoðað verkefnið með tilliti til þeirra þátta sem skipta máli í umhverfi verkefnisins og eru þar SAMGÖNGUR stærsti þátturinn.  Það sagði mér sjúkraflutningamaður að ástandið væri þannig í dag, að sjúkrabíll í FORGANGSAKSTRI væri í STÓRFELLDU VANDRÆÐUM, ÞAÐ STANDA EKKI TIL NEINAR SAMGÖNGUBÆTUR Á ÞESSU SVÆÐI.  HVERNIG HALDA MENN AÐ ÁSTANDIÐ VERÐI ÞEGAR FRAMKVÆMDUM ER LOKIÐ???  Þetta er aðeins hluti af vandamálinu.  Ég man ekki betur en að mikill tími hafi farið, af fréttatímum RÚV fyrir stuttu síðan, um hve bágt ástandið væri á mörgu húsnæði Landspítalans á Hringbraut væri vegna myglu og lélegs viðhalds.  En nú er orðið allt í lagi með þessar byggingar og meira að segja á að fara að nýta þessar byggingar áfram.  Er nema von að spurt sé: "HVER EÐA HVERJIR HAFA HAG AF ÞESSARI VITLEYSU???????


mbl.is Meirihluti lækna vill Landspítalann á nýjan stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Segðu Jóhann.

Þetta er alveg með ólíkindum allt í kringum þetta sjúkrahús.

Það þarf ekki menntaðan mann til þess að sjá hversu fáránleg

þessi staðsetning er.

En það vill þingheimur ekki sjá og þeir sem stjórna.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 21.1.2019 kl. 17:01

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

LÆKNAR og sjúklingar eiga að koma hjólandi á spítalann ! BORGARSTJÓRINNSEGIRÞAÐ ! Ef þú færð slag á Hringbraut á háannatima tórirðu ekki til að komast inná Lansann- það sparar stórfé .sealedundecided

Erla Magna Alexandersdóttir, 21.1.2019 kl. 19:38

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg rétt hjá þér Sigurður, að það þarf enga menntamenn til að sjá fáránleikann við þessa staðsetningu, heldur er alveg nóg að hafasmá skammt af heilbrigðri skynsemi.  Þingheimur virðist bara gera það sem þeim er sagt að gera...

Jóhann Elíasson, 21.1.2019 kl. 20:24

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, svei mér þá, Erla Magna þarna held ég að þú hafir hitt naglann beint á höfuðið og kafneglt hann...... wink

Jóhann Elíasson, 21.1.2019 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband