MENN HAFA NÚ ÖRUGGLEGA EKKI HAFT MIKLAR VÆNTINGAR UM AÐGERÐIR STJÓRNVALDA????

Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa talað á þann veg að, í það minnsta hafði ég ekki nokkra trú á að það kæmi neitt bitastætt úr þeirri átt, sem sennilega er raunin (en auðvitað er þetta óstaðfest en viðbrögð Vilhjálms Birgissonar benda til þess).

Ég hef löngum haldið því fram að sterkasta aðgerðin fyrir þá launalægstu, væri að HÆKKA persónuafsláttinn til samræmis við neysluvísitöluna þann tíma sem sem hann hefur verið í gildi, eða frá 1988 þegar hann var 15.524 krónur.  Samkvæmt því hefði hann átt að vera 78.168 í mars mánuði 2018.  En það er með persónuafsláttinn að alveg frá upphafi hefur hann verið uppbyggður úr mjög mismunandi "þáttum" sem áttu að að hafa áhrif á hann.  Þetta vil ég meina að hafi verið með ráðum gert til þess að "réttlæta" það að hann fylgdi ekki Neysluverðvísitölunni og hreinlega að BLEKKJA almenning.  Ef 320.000 krónu laun ættu að vera skattfrjáls og persónuafslátturinn væri 76.168 krónur þyrfti NEÐRA skattþrepið að vera 20,49%.  Ef Bjarni Ben læsi þetta fengi hann fyrir hjartað, "því þetta myndi að hans mati kosta svo gríðarlega mikið".  Að mínu mati, ég hef nú reyndar ekki reiknað þetta út en það er til nokkuð sem heitir heilbrigð skynsemi, myndi kostnaðurinn verða sáralítill og jafnvel gæti verið að tekjur ríkisins komið til með að aukast.  Við þessa aðgerð myndu ráðstöfunartekjur þeirra launalægstu aukast og það lýsir sér í aukningu á Virðisaukaskatti og öðrum neyslusköttum.  Þá væri hægt að láta EFRA skattþrepið taka við í tekjum yfir 699.000 krónum og að persónuafsláttur falli niður á laun sem eru hærri en 1.000.000 krónum, enda skipta 76.000 krónur ekki nokkru máli fyrir þann sem er með þau laun.  Ég er alveg viss um að kostnaðurinn við þessar aðgerðir yrði ekkert í líkingu við það að hér á landi myndi allt loga í verkföllum í margar vikur.....


mbl.is Tillögurnar langt undir væntingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband