ER ÞÁ KOMIÐ Í LJÓS AÐ POGBA ER "BALOTELLI" MANCHESTER UNITED ?????

Það var mikið um það talað hversu slæm samskipti Pogba og Mourhinio væri og talið að allt myndi batna, þegar Mourhinio færi.  Ástandið batnaði jú í einhvern tíma en nú virðist allt komið í sama farið og var. Nú er komið í ljós að vandamálið var allan tímann hjá Pogba en kallgreyið hann Móri var ekki eins slæmur og menn höfðu haldið fram.  En Manchester United og Liverpool virðast ganga í gegnum svipuð vandamál, bara hvort á sínum tíma..........


mbl.is Pogba búinn að ákveða sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Skritið að vera "púlari" og halda með Man.united í kvöld!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 24.4.2019 kl. 14:59

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, satt segirðu.  Ég er búinn að vera "púlari" síðan ég var níu ára svo eins og þú segir Sigurður, það er skrítið að halda með M U í kvöld.

Jóhann Elíasson, 24.4.2019 kl. 18:18

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Fyrir uþb.2 tímum var ég byrjuð á ath.semd því enski boltinn hefur verið í hávegum hafður á mínu heimili alla tíð,en þá komu góðir gestir.- Tapi mínir vona ég að Liverpool vinni. Svo skemmtilega vildi til að "púllarinn" sonur minn hringdi frá Noregi og þaðan eru sterkir straumar til mömmuliðsins Manutd. að þeir vinni.Það eru nú svo mörg ár síðan að hann vann Gullskóinn hér heima og sagði hann Atla Eðvalds eiga sinn þátt í því,tíminn er á harðahlaupum og fyrr en varir eru þeir gamlir bara refir.  

Helga Kristjánsdóttir, 24.4.2019 kl. 18:30

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Komdu blessuð Helga!  Ég er vissum að þínir menn vinni í kvöld.  Hver er sonur þinn sem vann gullskóinn?  Atli Eðvalds hefur alla tíð  verið í miklu uppáhaldi hjá mér.  Árið 2000 kenndi ég syni hans í Flensborg, hann var mikill sómapiltur og án þess að hafa nokkurn tímann hitt Atla ímynda ég mér að þeir feðgar séu frekar líkir.   Ekki nóg með að strákurinn væri eins og snýttur út úr nefinu á honum þá var hann mjög kurteis og til mikillar fyrirmyndar.........

Jóhann Elíasson, 24.4.2019 kl. 19:53

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Því miður vann City en þeir eiga eftir að misstíga sig......

Jóhann Elíasson, 24.4.2019 kl. 22:19

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Jóhann! Ég var að dunda við að svara þér þegar rellan fór úr sambandi og auðvitað þurrkaðist allt út. En Sigurjón Kristjánsson fékk gulkskóinn 1988 og silfur árinu á undan (eða á eftir)minnir mig,og toppur að verða valinn bestur það ár.lék með Atla í framlínu Vals. Atli var bæði gríðarlega góður og reyndur lagði á ráðin að hann tæki háu boltana og Sigurjón nýtti sendingarnar til að skjóta,góð samvinna þar. ---

En United verður að fá menn sem geta kontrað bolta þó sendir séu fast á þá  finnst mér Luk,Belginn ekki ráða vel við það.-Ég sakna ekkert Pogba þó hann fari og mér er til efs að varamarkmaður þeirra frá Brasilíu sé nokkuð lakari en D.GEA. Ég hefði viljað sjá þá Sanches og Mata inn á og helst strax eftir fyrsta markið.-Skil ekki þetta dálæti á Fred,þótt hann sé duglegur kemur engin ógn af honum. Svona tuðum við áhangendur.
Fyrst ég er byrjuð aftur,vil ég geta þess að kristján Þór sonur minn,sonur hans og tengdasonur fóru á leik Manchester og Everton í boði Gylfa.Þeir eru raunar MU*áhangendur en fögnuðu Gylfa sem var toppurinn í leiknum. Jæja farið að birta af degi enda stutt í bjartar nætur. Já reyndi að senda páskakveðju en gengur ekki vel með frekar gömlum Ipad en veit ekki hvort það tókst,þá bara núna "gleðilega páska"  

Helga Kristjánsdóttir, 25.4.2019 kl. 05:41

7 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Að Púllari ætlaði að treysta á og halda með M U. er bara skandall enda kom það í ljós!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 25.4.2019 kl. 10:02

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Púllarar eru í þessari stöðu vegna eigin framistöðu.
Pep segir við höfum Þetta í okkar höndum.
Sólskjer áttar sig á sannindum orða Beckam,s að eigendur Manutd hirtu gróðann af vinsældum félagsins fremur en að leggja því til fé svo fylgja mætti harðnandi peningakröfum leikmanna. Það eru nokkur ár síðan og bara gott að þeir er enn með þeim bestu,en alltént með þeim vinsælustu í heimi.

Helga Kristjánsdóttir, 25.4.2019 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband