Föstudagsgrín

Hafnfirðingur nokkur ákvað að brjóta blað í sögu fjölskyldu sinnar og ganga menntaveginn.  Hann sótti um inngöngu í Háskóla Íslands og fékk inngöngu (þetta var þegar aðeins EINN háskóli var á öllu landinu).  Nokkrum dögum eftir að hann hafði fengið þau gleðitíðindi að hann hefði hlotið inngöngu í skólann hitti hann rektor skólans, í veislu innan fjölskyldunnar en þeir voru tengdir fjölskylduböndum en ekki voru samskipti þeirra mikil, auðvitað sagði hann honum tíðindin.  Rektorinn samgladdist með vininum en bætti svo við......"En var ekki neitt erfitt fyrir þig að velja þér grein"?  Þá sagði Hafnfirðingurinn:   „Hvað fæ ég ekki borð og stól eins og hinir"????????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Svo var það eldri borgarinn (ekki ég) sem lét gamlan draum rætast og keypti sér flott móterhjól. Svo frétti hann að móterhjólatöffararnir hittust alltaf á ákveðnum stað einu sinni í viku. Þeir voru þar að dáðst að hjólum hvors annars og ekki var verra að vera með flotta blómarós fyrir aftan sig. Þegar vinur okkar mætir þarna kemur aðal töffarinn til hans og spyr hvaða skreytingu hann sé með fyrir aftan sig? Sá "gamli" lítur á konu sína sem sat þarna og segir: Þurrskreytingu. 

Sigurður I B Guðmundsson, 26.4.2019 kl. 10:27

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góður þessi, Sigurður....

Jóhann Elíasson, 26.4.2019 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband