ÞARNA LIGGUR HUNDURINN GRAFINN - ÍSLAND ER EKKI MEÐ NEINA ORKUSTEFNU

Og stjórnvöldum finnst bara best að leggjast flatir undir orkustefnu ESB og láta ESB stjórna orkumálum Íslendinga.  En eitt er nokkuð skýr, að til þess að sæstrengur til Evrópu geti orðið hagkvæmu, ÞARF EINA VIRKJUN Á STÆRÐ VIÐ KÁRAHNJÚKAVIRKJUN OG TVÆR VIRKJANIR Á STÆRÐ VIÐ BLÖNDUVIRKJUN.  Í fljótu bragði sé ég ekki að við eigum þessa kosti ÞAÐ EINA SEM GÆTI KOMIÐ TIL ERU DETTIFOSS OG GULLFOSS, sem færu langleiðina með að uppfylla þessa þörf en þá yrðu að koma til "smærri" kostir eins og GOÐAFOSS,GLYMUR og kannski eru einhverjir fossar í Norðurá og víðar sem hægt væri að nýta.  Það var nú frekar dapurlegt að horfa uppá Iðnaðarráðherra ljúga alveg kinnroðalaust, í Silfrinu áðan.  En viðtalið þar bar það alveg með sér að hún hafði EKKI kynnt sér innihald orkupakka þrjú á GAGNRÝNAN hátt.  Það er nefnilega alveg á hreinu að Íslensk stjórnvöl hafa EKKERT um það að segja hvort sæstrengur verði lagður eða ekki og enn síður um hvort hér verði virkjað og hvar, verði orkupakki þrjú samþykktur..........


mbl.is Vald verði ekki framselt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

já m.a.Glanni í Norðurá,furðulegt að ríkisstjórnin skuli ryðjast svona líka glannalega og laumulega í innleiðingu tilskipana EES um orku Íslands. Það er ekki hægt að hugsa til þess að pakkinn verði samþykktur,þess vegna höldum áfram að vekja þá sem nenna ekki að hugsa um hvað gerist,en margir eru farnir að rumska.

Helga Kristjánsdóttir, 28.4.2019 kl. 13:45

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Og ekki var nú rökunum fyrir að fara hjá Iðnaðarráðherra, í "Silfrinu" í dag......

Jóhann Elíasson, 28.4.2019 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband