NÝTT "KEIKÓ-ÆVINTÝRI" Í UPPSIGLINGU??????

Sirkusinn í sambandi við þessa mjaldra minnir óneitanlega á fárið í kringum "Keikó" á sínum tíma, þar sem átti að láta Íslendinga sitja uppi með "sirkusdýrið" sem menn vissu að var kominn á seinni hluta ævinnar og það varð að koma honum á "elliheimili" og svo mætti það ekki vekja of mikla athygli heimsbyggðarinnar, þegar hann dræpist, skítt með það þótt þetta vesen kostaði mikla peninga.  Þetta gekk upp með Keikó og gæti gengið upp aftur, í það minnsta finnst mönnum í lagi að reyna þetta aftur......


mbl.is Mjaldrarnir koma til landsins í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Verður Hallur Hallsson talsmaður þeirra???

Sigurður I B Guðmundsson, 19.6.2019 kl. 09:49

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei,  ég "hallast" nú frekar að Sigursteini Másyni.... wink

Jóhann Elíasson, 19.6.2019 kl. 10:05

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Mjaldrarnir eiga allt gott skilið - þeir voru á sínum tíma hrifsaðir úr sínu náttúrulega umhverfi.  Svo fáum við bara að njóta þess að fylgjast með flutningunum, Cargolux og Ísland fá góða auglýsingu - og einhver náttúruverndarsamtök borga brúsann.  :)

Kolbrún Hilmars, 19.6.2019 kl. 13:01

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Kolbrún, dýrin sem slík eru þolendur í þessu máli.Voru það ekki líka "einhver náttúruverndarsamtök" sem borguðu brúsann í tilfelli Keikós?  Þetta með auglýsinguna er ég ekki alveg viss um......

Jóhann Elíasson, 19.6.2019 kl. 16:18

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Jóhann, það er allt komið á hvolf.  Ekki aðeins í dýraverndunarmálum, þar sem nú þarf greinilega tvöfalt kerfi.  Fyrst koma peningaaðilar og góma dýrin (heima hjá sér), nota þau sem sýnisgripi og svo koma frelsandi samtök seinna og kosta uppá flutning þeirra til baka - eða bara eitthvað annað.  Gæti verið að þessir tveir "aðilar" vinni saman; þegar dýrin eldast þarf að losna við þau úr sýningarsalnum og hvað er þá betra en að frelsarinn mæti - engar sögur fara af elliheimilum sýningardýra...

Kolbrún Hilmars, 19.6.2019 kl. 17:32

6 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er kostnaðurinn við þessa flutninga leyndarmál???

Sigurður I B Guðmundsson, 19.6.2019 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband