ER ÚTÞENSLA "BÁKNSINS" ORÐIN ÓVIÐRÁÐANLEG??????

Hvað er orðið um slagorð Sjálfstæðisfokksins "BÁKNIÐ BURT"?  Nú stendur til að "SAMEINA Fjármálaeftirlitið og Seðlabanka Íslands, sem hlýtur að vera hið besta mál, eða hvað?  Samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi ER EKKI GERT RÁÐ FYRIR NEINNI HAGRÆÐINGU AF ÞESSUM SAMRUNA.  Hver er þá eiginlega tilgangurinn með þessari sameiningu?  Með öðrum orðum sagt að þá vitum við að það verður MIKILL kostnaður við þessa sameiningu (flutningar og fleira) en ENGINN hagnaður.  Þegar við vorum að ná okkur eftir "HRUNIÐ" þá þandist opinberi geirinn út á meðan einkageirinn og almenningur varð að taka ALLAN skellinn og svo var skorin niður framlög til Heilbrigðiskerfisins, Félagskerfisins, Löggæslunnar og fleira.  Svona er ekki hægt að halda áfram til eilífðarnóns, það er ekki endalaust hægt að hækka skatta endalaust, það kemur að því að fólk fær nóg.  Og hvað gerist þá????????


mbl.is Útgjöld ríkissjóðs aukin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er kominn tími til að fram á sjónarsviðið komi flokkur sem hefur þá stefnu fyrst og fremst að draga úr ríkisútgjöldum og minnka regluverk.

Þorsteinn Siglaugsson, 20.6.2019 kl. 10:26

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki er ég bjartsýnn á það, Þorsteinn.  Undanfarið, þegar komið hefur fram nýtt framboð, sem er líklegur til að komast inn á þing, þá hefur komið fram "skoðanakönnun" daginn fyrir kosningar, sem segir að viðkomandi framboð komi til með að fá 2% atkvæða.  Þetta verður til þess að menn hætta við að kjósa þetta framboð, því menn vilja ekki að atkvæði þeirra detti niður "dautt".

Jóhann Elíasson, 20.6.2019 kl. 11:31

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

"Fjórflokkurinn" er búinn að rústa þessu þjóðfélagi og það sem verra er að "fjórflokkurinn" er orðinn að einum alsherjar hagsmunarfélagi í þágu þeirra sem telja sig eiga landið og miðin!

Sigurður I B Guðmundsson, 20.6.2019 kl. 15:02

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að þú hafir alveg rétt fyrir þér þarna Sigurður og eina ráðið er kannski að snúa sér að Miðflokknum og Flokki Fólksins, Sósíalistaflokkurinn er alveg handónýtur með "ný-Sósíalistann og fyrrum kapítalistann Gunnar Smára í broddi fylkingar (sem er einn mesti "loddari" Íslandssögunnar)...........

Jóhann Elíasson, 20.6.2019 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband