AÐ SJÁLFSÖGÐU EKKI ÞAÐ ERU SKATTGREIÐENDUR SEM BORGA - SKIPTIR "ENGU" EINASTA MÁLI

ISAVIA hefur hingað til hagað sér eins og fyrirtækið sé hafið yfir lög og reglu á Íslandi, enda enginn sem virðist hafa neitt með fyrirtækið að gera og ekkert boðvald yfir gjörðum þess að einu eða neinu leiti.  Í skjóli þessa hefur fyrirtækið "troðið" á rétti fyrirtækja, sem starfa í Flugstöðinni og víðar, svo ekki sé minnst á að markmið og stefna fyrirtækisins virðist taka breytingum eftir því hvernig vindar blása.  Fyrirtækið á að sjá um flugvelli landsins en nú virðist vera að aðalstefna fyrirtækisins sé hámörkun HAGNAÐAR og enginn segir neitt.  Málið með þessa flugvél er alveg kostulegt og er efni í heila bók.  Ég held að ég geti fullyrt það að EKKERT EINKAFYRIRTÆKI HEFÐI LEYFT SÉR AÐ GANGA FRAM MEÐ ÞESSUM HÆTTI sem ISAVIA hefur gert í þessu máli og svo bíta þeir hausinn af skömminni með því að lýsa því yfir að dómurinn sé einfaldlega RANGUR og alveg greinilegt að það átti bara að hunsa hann eins og þeir gerðu í "Kaffitársmálinu" (man einhver eftir því?)......


mbl.is Sér ekki eftir ákvörðunum Isavia
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ber einhver ábyrgð þarf einhver að segja af sér? Ó nei, ekki á Íslandi!!

Sigurður I B Guðmundsson, 20.7.2019 kl. 09:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sérstaklega ekki hjá þessu fyrirtæki.  Einhverjir reiknuðu með breytingu með nýjum forstjóra en hann var "uppalinn" innan fyrirtækisins, þannig að ekki var von á neinni breytingu úr þeirri átt........

Jóhann Elíasson, 20.7.2019 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband