HVERJU ORÐI SANNARA.......

Það þarf ekki að leita víða á netinu til að finna sannfærandi rök og útreikninga fyrir því að hagsmunir ESB fyrir því að Bretar verði áfram í ESB séu meiri en hjá Bretum.  Því var líka spáð að eftir að Bretar kusu með því að ganga út úr ESB myndi Bretland gjörsamlega fara á hliðina og allt hrynja og þar færi fremst Breska pundið. Jú það lækkaði nokkra fyrstu dagana eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna en er að jafna sig og hækkar bara og hækkar á meðan evran lækkar og lækkar.  Allt bendir þetta í einu og sömu áttina en INNLIMUNARSINNARNIR eruð svo blindaður af lotningu gagnvart ESB að þeir sjá ekki nokkurn skapaðan hlut og verða ykkur ítrekað til háborinnar skammmar með innihaldslausu bulli um ágæti ESB.  Nú eru bara eftir einhverjir örfáir INNLIMUNARSINNAR sem "hanga á því eins og hundar á roði" að BREXIT eigi eftir að skaða Breta eitthvað.........


mbl.is „Gríðarleg tækifæri felast í Brexit“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Brexit er það besta sem getur komið fyrir Breta, þeir munu ráða sínum málum sjálfir. Boris Johnson er Trump Breta. Hann á eftir að gera marga góða hluti fyrir Bresku þjóðina, nokkuð sem ESB hefði aldrei getað né hefur vilja til að gera.

Tómas Ibsen Halldórsson, 27.7.2019 kl. 15:00

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það er eins og sumt fólk nærist á því að tala hlutina niður!!

Sigurður I B Guðmundsson, 27.7.2019 kl. 15:07

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Tómas, ætli Boris Johnson sé ekki búinn að sjá, svo ekki verður um villst, að ESB er bara hugarfóstur Nasista og starfar í anda þeirra enn þann dag í dag?

Jóhann Elíasson, 27.7.2019 kl. 15:25

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður, Gróa á Leiti er lífseig og ýmsir sem kjósa að fara í fótspor hennar.......

Jóhann Elíasson, 27.7.2019 kl. 15:27

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Leynt og ljóst hafa þeir sem stjórna ESB stefnt að því sem Hitler tókst ekki, að sölsa alla Evrópu undir sig, gera ESB að ríkjabandalagi og eyðileggja hin sjálfstæðu ríki innan þess.

Tómas Ibsen Halldórsson, 27.7.2019 kl. 15:31

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna er ég þér 100% sammála, Tómas......

Jóhann Elíasson, 27.7.2019 kl. 15:43

7 identicon

„[Pundið] hækkar bara og hækkar á meðan evran lækkar og lækkar“

Uuuu nei. Pundið lækkaði skarpt m.v. evru (og aðra gjaldmiðla auðvitað líka) strax við kosningarnar. Það hefur ekki tekið við sér síðan, heldur þvert á móti veikst örlítið meira.

En það er svosem ekki við öðru að búast en kjaftæði frá manni sem lifir í einhverjum hliðarveruleika þar sem Evrópusambandinu er stýrt af nasistum, þó svo að ekki finnist sá nasisti á jarðríki sem kann ekki illa við ESB.

Hér er ein mynd: https://gyazo.com/f8acc451e4740af8631672005afc220f

Alexander (IP-tala skráð) 28.7.2019 kl. 16:31

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alltaf sama sagan með ykkur INNLIMUNARSINNANA Alexander, prófaðu að opna augun og lestu til dæmis þetta:https://www.amazon.co.uk/Shocking-History-EU-Vernon-Coleman/dp/109255789X/ref=sr_1_2?crid=3KRP7BWEZN2DM&keywords=the+shocking+history+of+the+eu&qid=1564336123&s=books&sprefix=The+shocking+history%2Caps%2C180&sr=1-2#reader_109255789X

Jóhann Elíasson, 28.7.2019 kl. 17:55

9 identicon

En þú játar semsagt að hafa haft á röngu að standa með pundið?

Alexander (IP-tala skráð) 28.7.2019 kl. 18:33

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei það geri ég ekki..........

Jóhann Elíasson, 28.7.2019 kl. 20:43

11 identicon

Auðvitað ekki. Ég veit ekki hvernig mér datt í hug að blákaldar staðreyndir gætu fengið þig til að sjá að þér. Framtíðarþróun punds og evru er auðvitað óráðin, en það er nú bara einu sinni staðreynd að pundið hefur ekkert náð sér á strik enn eftir Brexit-kosninguna. En heilafimleikar þínir til að laga raunveruleikann að eigin skoðunum og óskum eru aðdáunarverðir

Alexander (IP-tala skráð) 28.7.2019 kl. 23:58

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alexander, þú skoðar bara gengið milli pundsins og evrunnar en þér hefur ekki dottið í hug að skoða hvernig evran og pundið hafa staðið sig gagnvart dollar á þessum sama tíma.  Það er talað um að til sé þrenn sona lygi; það er LYGI, HAUGALYGI og TÖLFRÆÐI.  Mér sýnist þú fara ansi frjálslega með TÖLFRÆÐINA.  Þú horfir líka framhjá því að helstu hagfræðingar eins og til dæmis Robert Stiglitz og fleiri hafa sagt að evran sé STÆRSTU HAGFRÆÐIMISTÖK ALLRA TÍMA.

Jóhann Elíasson, 29.7.2019 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband