Föstudagsgrín

Hann borgaði henni með semingi það sem upp var sett, þau luku sér af og þegar hann var búinn að laga sig til sat hann þögull og gneyptur við stýrið.

"Heyrðu, ætlarðu ekki að fara að keyra af stað?" sagði hún, því að henni var hætt að standa á sama um þetta.

„Sko, mér er illa við að þurfa að segja þér þetta en sannleikurinn er sá að ég er leigubílstjóri og fargjaldið aftur í bæinn gerir fimmtán þúsund kall".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Svo var það gleðikonurnar sem þurftu að hætta vegna: Ein hafði ekkert upp á sig lengur,önnur var kominn með geðklofa,þriðja var allt of útlærð, fjórða brúkaði kjaft (fatta það ekki alveg)fimmta drap tittlinga sú var stórhættuleg. 

Sigurður I B Guðmundsson, 23.8.2019 kl. 10:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta með að "brúka kjaft" er víst nokkuð vel þekkt í kynlífsbransanum og þykir víst alveg ágætt wink .  En ég get alveg tekið undir það að sú sem "drap tittlinga" hafi verið stórhættuleg.

Jóhann Elíasson, 23.8.2019 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband