Er ekki best að segja hlutina eins og þeir eru? "SKÝRSLAN ER EKKI PAPPÍRSINS VIRÐI"...

Hvað þá TUGA MILLJÓNA EINS OG MÉR SKILST AÐ HÚN HAFI KOSTAÐ OKKUR SKATTBORGARANA.  Reyndar sagði ég, í bloggi þann 1.10 2019 SJÁ HÉR, að "skýrslan væri aðallega fræðileg úttekt á KOSTUM EES samningsins".  Þetta var mjög ónákvæmlega orðað hjá mér og biðst ég afsökunar á því.  Fræðilega er þessi skýrsla hvorki fugl né fiskur einfaldlega vegna heimilda eða réttara sagt vegna skorts á heimildum og lítilla sem engra tilvitnana í heimildir, er ég smeykur um að skýrslan hefði fengið algjöra falleinkunn.  Það er mikið talað um "kostina fyrir Ísland að vera í EES samstarfinu en ekki minnst einu orði á gallana fyrir landið og einræðistilburði ESB gagnvart landinu".  Eins og kom fram bæði í ORKUPAKKA ÞRJÚ OG KJÖTMÁLINU.  Ráðamenn "þorðu" ekki annað en að samþykkja það sem kom frá ESB, því annars væri EES samningurinn í hættu.  GÆTI EKKI VERIÐ AÐ STJÓRNVÖLD ÞYRFTU AÐ GERA HREINT FYRIR SÍNUM DYRUM OG SEGJA ÞJÓÐINNI FRÁ HVERJU ÍSLENDINGUM VAR HÓTAÐ EF ORKUPAKKI ÞRJÚ YRÐI EKKI SAMÞYKKTUR??????


mbl.is Skýrslan „gagnrýnislaust varnarrit“ fyrir EES
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

VIÐ HVAÐ eru stjórnmálamenn okkar svona hræddir ? Ættu þeir ekki að fá ser aðra vinnu en að velja sjálfstæði okkar ?

Erla Magna Alexandersdóttir, 3.10.2019 kl. 21:45

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er alveg hárrétt hjá þér Erla Magna.  Ef menn "bogna" fyrir einni (eða tveimur) ómerkilegum hótunum eru þeir EKKI þeir bógar að geta varið hagsmuni landsins og eins og þú segir þá eiga þeir bara að fá sér vinnu sem ekki gerir kröfu um að menn hafi neitt sem heitir SAMVISKU.

Jóhann Elíasson, 3.10.2019 kl. 22:26

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég bíð þolinmóður eftir því framboði, sem hefur ófrávíkjanlega á stefnuskrá sinni gagngera endurskoðun á EES samningnum með eftirfylgjandi kosningu um niðurstöðuna í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Miðflokkurinn með Gunnar Braga Sveinsson í fylkingarbrjósti þó varla talist trúverðugur í ljósi þess sem á undan er gengið.

Jónatan Karlsson, 4.10.2019 kl. 00:25

4 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Þetta eru alvarleg mál sem snerta grundvallar atriði varðandi stöðu þjóðarinnar.

Nú er búið að skvísuvæða í forustusveit Sjálfstæðisflokksins, og mér sýnist sá hópur vera afar hallur undir ESB.

Spurning hvort Miðflokkurinn sé ekki sá flokkur, sem einn stendur í lappirnar varðandi sjálfstæði þjóðarinnar og þá innlimunartilburði sem hér eru í gangi.

Sveinn R. Pálsson, 4.10.2019 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband