ÞVÍ MIÐUR FÉKK HANN ÞRIGGJA SÆTA REFSINGU.....

Þannig að Leclerc verður á ráspól á morgun og Vettel verður í öðru sæti, Hamilton í því þriðja og Verstappen í því fjórða.  Ég veit það ekki en mér þykir þetta MJÖG hörð refsing, hann fékk hana fyrir að hægja ekki á sér eftir að gulum flöggum var veifað, eftir að Bottas keyrði á vegg.  Verstappen var kominn út úr síðustu beygjunni fyrir rásmarkið þegar gulu flaggi var veifað.  En reglur eru jú reglur en þeim hefur ekki alltaf verið beitt til hins ýtrasta og sérstaklega ekki þegar Hamilton á í hlut en þá eru þær ekki í heiðri hafðar........


mbl.is Verstappen á ráspól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég var að hlusta á hádegisfréttirnar á RÚV áðan og annað eins bull hef ég ekki heyrt í langan tíma. Fyrir það fyrsta þá var því haldið fram (í tvígang) að Max Verstappen sé Þjóðverji en eins og allir hljóta að vita er að hann er Hollendingur.  Í annan stað var sagt að hann hefði verið færður í þriðja sætið en hann var færður niður um ÞRJÚ sæti eða með öðrum orðum niður í FJÓRÐA sæti.  RÚV verður nú eiginlega að leiðrétta þessa vitleysu sína........

Jóhann Elíasson, 27.10.2019 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband