ÞAÐ VERÐUR Á BRATTANN FYRIR DANINA AÐ VINNA EM TITILINN EFTIR ÞESSI ÚRSLIT

En Íslenska liðið verður að passa sig eftir þennan sigur það er ekki hægt að segja að sagan sé okkur hagstæð, það er einum of algengt að við höfum unnið fyrsta leik og svo ekki söguna meir.  Nú er það áskorunin að láta þá sögu ekki endurtaka sig.  En það verður ekki horft framhjá því að leikur Íslands í dag var stórkostlegur og hlýtur að vera sérstaklega SÆTT fyrir Guðmund ÞÓRÐ Guðmundsson að vinna þennan sigur, nánast á heimavelli Dana og þannig að ná fram hefndum vegna framkomu Dana við hann, þegar hann þjálfaði landslið þeirra og gerði þá að ólympíumeisturum.......


mbl.is Að vinna besta lið heims er mjög stór sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það þarf ekki að gera þetta neitt flókið, bara halda strikinu, ef íslenska liðið spilar jafn vel og í þessum leik í dag eru því allir vegir færir.

Guðmundur Ásgeirsson, 11.1.2020 kl. 23:11

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, það er nefnilega meinið.  Það er kannski kominn stöðugleiki í liðið sem hefur vantað hingað til......

Jóhann Elíasson, 12.1.2020 kl. 00:54

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Héldu út allan leiktímann án þess að gefa neitt eftir. Enginn "slæmur kafli" nema kannski tvær mínútur í seinni hálfleik en ekki meir. Mjög spennandi leikur og góður.

Guðmundur Ásgeirsson, 12.1.2020 kl. 01:06

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, rétt er það leikurinn var góður hjá liðinu en það voru líka fyrstu leikirnir á tveimur síðustu EM mótum en eftir það töpuð þeir öllum leikjunum og komust ekki upp úr riðlakeppninni.  Við skulum vona að það endurtaki sig ekki.....

Jóhann Elíasson, 12.1.2020 kl. 08:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband