BYRJUNIN HJÁ STRÁKUNUM OKKAR GERÐI ÚT UM LEIKINN.......

Eins og fyrri hálfleikurinn var ömurlegur hjá strákunum, var sá seinni alveg stórkostlegur.  Ungu strákarnir sýndu það svo sannarlega úr hverju þeir eru gerðir og svo var "Westinghouse ísskápurinn" okkar á línunni mjög öflugur þegar hann náði að beita sér og mikið sá ég eftir markinu, sem dómararnir tóku af honum með því að flauta á brot Norðmanna "of snemma".  Þá er ekki hægt að horfa framhjá frammistöðu Viktors í markinu, það segir nokkuð mikið þegar maður úr tapliðinu er valinn maður leiksins.  Þá er ekki hægt að horfa framhjá frammistöðu eins besta handboltamanns í heimi, það er einfaldlega óásættanlegt að fá BARA TVO GÓÐA LEIKI FRÁ HONUM Á STÓRMÓTI..........


mbl.is Þriggja marka tap gegn Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já eittvað er að trufla hann þótt maður geti ekkert lagað það sendi ég honum baráttu kveðju- -maðurinn minn og afi hans ráku trésmíðaverkstæði saman um árabil.

Helga Kristjánsdóttir, 22.1.2020 kl. 04:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband