ER ÞETTA ALLT??????

Þann 4.12.2019 bloggaði ég um hvernig verðlagning sjávarafurða hefur verið með tvenns konar hætt, áratugum saman og gert spillingu og stórkostlega tilfærslu fjármuna úr landi mögulega SJÁ HÉR.  Þetta versnaði stórlega eftir að kvótakerfið var tekið upp og gerði það að verkum að leikurinn varð mun einfaldari.  Ekki er ég að kenna kvótakerfinu um en þegar það var sett á vað þessi "leikur" frekar regla en undantekning. Það þarf ekki að segja neinum manni það að stjórnvöld hafi ekki vitað hvað var í gangi.  Það er ekki að sjá að "Namibíumálið" hafi nokkrar afleiðingar fyrir Samherja.  Þeir eru að "rannsaka" málið sjálfir og sjálfsagt hafa þeir sjálfdæmi í þessu máli líka.  Stjórnvöld þegja þunnu hljóði og sjálfsagt halda þau að hægt verði að þegja þetta í hel.  Einu áhrifin, sem þetta mál virðist ætla að hafa, er að Samherji þarf að fara frá Namibíu.  En ætla þjóðin endalaust að láta taka sig í ra...... og láta þetta kvótakerfi vera óbreytt og kjósa þetta sama lið endalaust yfir sig þannig að allt verði óbreytt???????


mbl.is Áfram unnið að því að hætta starfsemi í Namibíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós að LÍÚ núna SFS stjórna þessu landi.

Sigurður I B Guðmundsson, 6.2.2020 kl. 19:53

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að þetta sé alveg rétt hjá þér og þegar eitthvað kemur upp eins og til dæmis Samherjamálið, þá fer þetta lið í "Nóbelsverðlaunagírinn" og fyllist "vandlætingu", eins og til dæmis Kata litla, en sá leikþáttur stóð ekki lengi yfir....

Jóhann Elíasson, 7.2.2020 kl. 07:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband