ÞARF AÐ STOKKA ALLT UPP VARÐANDI FISKVEIÐAR OG FISKVERÐLAGNINGU Í ÞESSU LANDI..

Þarna er sökudólgurinn fyrst og fremst þetta tvöfalda fiskverð, sem hefur verið í gangi hér áratugum saman.  Ég bloggaði um þetta þann 4.12.2019 SJÁ HÉR og leiddi líkum að afleiðingunum, en það er alveg ljóst að afleiðingarnar eru mun víðtækari af þessu en ég reiknaði með.  En sennilega finnst "stórútgerðarklíkunni" bara allt í lagi með það hvernig "BESTA FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFI Í HEIMI" er búið að leika byggðir landsins og vilja engar breytingar, sem gætu haft áhrif á að hagnaður þeirra dragist eitthvað saman og samfélagið gæti hagnast örlítið.  Þeir hafa valdið jú í sínum höndum..........


mbl.is Segir búið að flæma einstaklinga úr greininni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég dáist að þessari baráttu þinni en ég held því miður að það gerist ekkert fyrr en þjóðin vakni af þyrnirósasvefni sínum og hætti að kjósa "fjórflokkinn".

Sigurður I B Guðmundsson, 8.2.2020 kl. 21:54

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

En með því að berjast svona þá getur maður í það minnsta sagt að maður hafi reynt og svo er kannski rétt að árétta það að "miði er möguleiki" ef maður er aldrei með vinnur maður heldur aldrei..........

Jóhann Elíasson, 8.2.2020 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband