EN ER EKKI FULL ÁSTÆÐA TIL AÐ LOKA ÍSLANDI??????

Nú þegar þessi veira er við "bæjardyrnar" hjá okkur, þá virðist þetta vera "effektífasta" leiðin þó svo að einhverjir fjárhagslegir hagsmunir mæli gegn þessari aðgerð, þá eru langtímahagsmunirnir af þessu það miklir, að fjárhagslegu hagsmunirnir blikna í samanburðinum.  Það er ekki skrítið að einhverjir velti því fyrir sér hvort einhver "þrýstingur" valdi því hversu "máttleysislega" er brugðist við?????????


mbl.is Sjö Íslendingar í sóttkvínni á Tenerife
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Stórt er spurt. Ég held að þetta sé svo alvarlegt að það ætti að vera hér allsherja umræða á Alþingi hvað sé til ráða og það fyrr en síðar.

Sigurður I B Guðmundsson, 25.2.2020 kl. 11:41

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Sigurður.  Jú það væri í lagi að Alþingi ræddi þetta mál, kannski helst til að undirstrika hversu alvarlegt málið er.  En ég get ómögulega gert að því að mér finnst ansi lítið um aðgerðir til að koma í veg fyrir að þessi vírus nái fótfestu hér.  Þessi gámur, sem var settur upp, er náttúrulega ekkert annað en lélegur brandari....

Jóhann Elíasson, 25.2.2020 kl. 11:49

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, það er spurningin hvort ríkið( sem hatar okkur) vilji bara ekki missa eitthvað af ellilífeyrisþegum og öryrkjum?!

Ég trúi ýmsu upp á ríkið og svo er það ekki ábætandi hvað peningavöldin stjórna miklu hér á landi!

Kær kveðja frá Eyjum.sealed

Helgi Þór Gunnarsson, 25.2.2020 kl. 20:33

4 identicon

Rólegir.  Ég var að lesa viðtal við Rush Limbaugh.  Hann segir að þetta sé eitt alsherjar plott gegn Trump og þetta er ekkert annað en slæmt kvef.  Þannig að vinsamlegast haldið ykkur á mottunni.

Hilmar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.2.2020 kl. 08:25

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hilmar, þú ert greinilega mikill brandarakarl......laughing

Jóhann Elíasson, 26.2.2020 kl. 09:06

6 identicon

Þetta fann ég á The Guardian: "The coronavirus outbreak is being “weaponised” by the media to bring down Donald Trump when in fact it is simply a version of the “common cold”, the conservative radio host and presidential medal of freedom recipient Rush Limbaugh claimed on Monday."

Hilmar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.2.2020 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband