EN FYLGJA BANKARNIR OG FJÁRMÁFYRIRTÆKIN FORDÆMI SEÐLABANKA ÍSLANDS?

Ekki hef ég orðið var við neina "vaxtalækkun" hjá bönkunum í kjölfar stýrivaxtalækkana hjá Seðlabanka Íslands.  Eru vaxtalækkanir Seðlabankans ekki hálf máttlitlar ef þeim er ekki fylgt eftir út í þjóðfélaginu???????


mbl.is Stýrivextir lækkaðir í 2,25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Fyrrverandi Seðlabankastjóri sá alltaf einhverjar "Blikur á lofti" svo það var ekki hægt að lækka vexti. En núveramdi sér engar "blikur"  og er að gera allt sem hann getur til að hjálpa til og það kemur er ég viss um.

Sigurður I B Guðmundsson, 11.3.2020 kl. 16:13

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hann er að gera góða hluti í dag en hann þarf að hafa fleiri með sér.......

Jóhann Elíasson, 11.3.2020 kl. 16:50

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Frá því að vaxtalækkunarferli seðlabankans hófst hafa stýrivextir lækkað um 50%.

Á sama tíma hafa lægstu almennir bankavextir aðeins lækkað um helming af því eða 25%, úr 6% niður í 4,5% samkvæmt tilkynningu Landsbankans í dag.

Heimilin eiga því inni hjá bönkunum aðra eins lækkun og nú þegar hefur komið til framkvæmda hjá þeim, eða niður í 3% (óverðtryggt, vel að merkja).

Einhverntíman hefði þótt ótrúlegt að sá dagur gæti komið að Íslendingar gætu tekið lán á svo lágum vöxtum og það án verðtryggingar!

Þó ekki sé af góðu komið, er samt jákvætt að vextir lækki enda hjálpar það við að kveða niður þá mýtu að okur sé óhjákvæmilegt á Íslandi.

Guðmundur Ásgeirsson, 11.3.2020 kl. 18:13

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir innlið og mjög góðar upplýsingar, Guðmundur.  Ég held að allir séu sammála um það að heldur gengur hægt hjá bönkunum og öðrum fjármálastofnunum að lækka vextina og þar sem ríkið (almenningur í landinu) á bankana svo til að fullu, er ekki óeðlileg sú krafa að bankarnir lækki vextina þegar í stað og helst í gær......

Jóhann Elíasson, 11.3.2020 kl. 19:10

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég hef fylgst náið með þessari þróun frá því að vaxtalækkunarferlið hófst og mun halda því áfram.

Guðmundur Ásgeirsson, 11.3.2020 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband