ER ÞRÝSTINGURINN FRÁ SAMTÖKUM FERÐAÞJÓNUSTUNNAR SVO MIKILL AÐ ÞAÐ SÉ MAT RÍKISSTJÓRNARINNAR AÐ NÚ SÉ EKKI LENGUR "ÞÖRF" Á AÐ FARA AÐ RÁÐLEGGINGUM VÍSINDAMANNA???

Þessi árangur, sem Ísland hefur náð í baráttunni við covid-19 veiruna, er eftirtektarverður en nú er pólitíkin tekin við og það er eins og við manninn mælt að þá stefnir í að þessum góða árangri verði "KLÚÐRAÐ" á ljóshraða með því að opna landið fyrir ferðamönnum þann 15 júní næstkomandi........


mbl.is Ferðamenn eyddu 284 milljörðum hér í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þessi góði árangur hérlendis stafar annars vegar af því að örþjóðir ráða betur við smitútbreiðslu en fjölmennar og svo hins að önnur lönd skelltu í lás.  Held að við ættum að fara okkur hægt með það að opna landið aftur.  En skiljanlega er þrýstingur, ekki síst vegna óhóflegra hótelbygginga  í höfuðborginni.

Kolbrún Hilmars, 18.5.2020 kl. 14:25

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Svo á að skima fyrir veirunni í Leifstöð þegar farþegar stíga frá borði. Ef einstaklingur er með smit í þriggja til fimmtíma flugi er hann þá ekki búinn að smita nánast alla í flugvélinni? Hvaða della er þetta? 

Sigurður I B Guðmundsson, 18.5.2020 kl. 15:40

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú ég held það Sigurður.  Ég held að Kata og co. séu alveg búin að "tapa sér"......

Jóhann Elíasson, 18.5.2020 kl. 16:17

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Eins og þú væntanlega manst Jóhann, þá smita erlendir ferðamenn ekki á Íslandi.

Það voru bara íslenskir utanlandsfarar á skíðum sem þurfti að setja í sóttkví samkvæmt vísindunum.

Þannig að það ætti að vera allt í lagi að galopna landið án nokkurra ráðstafana annarra en halda Íslendingum heima.

Magnús Sigurðsson, 18.5.2020 kl. 17:27

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svei mér þá Magnús, ég var búinn að steingleyma þessu.  Sennilega verður þá allt í himnalagi cool....

Jóhann Elíasson, 18.5.2020 kl. 18:00

6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Svo sammála þér Jóhann. En mig langar að benda á eitt

varðandi slökun á opnum fyrir fólk til að njóta og ferðast.

Í flestum löndum í Evrópu eru líkamræktar stöðvar skilgreyndar sem

stórhættulegir smitstaðir og mega þakka fyrir að fá að opna í

Ágúst-September. Á Íslandi þykir bara sjálfsagt að líkja þessum 

stöðum við sundlaugar. Þarna fer fólk inn og puðar og svitnar og nánast

allir sem þar inn koma, koma til með að anda að sér svitaloftinu sem

allir gefa frá sér í þannig æfingum. Snertifletirnir eru óteljandi en

þrýstingur frá þessum eigendum með opnun er með öllu óskiljanlegur í ljósi þessa.

Það er alveg á hreinu að ég mun ekki fara þangað inn þegar ég get nýtt mér okkar

frábæra hreina lofts utan dyra.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 19.5.2020 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband