ER ÞÁ ÚRSLITASTUNDIN RUNNIN UPP?????????

Því miður verð ég að segja að mér finnst umræðan undafarna daga hafa snúist um algjöran "tittlingaskít" og engu líkara en verið sé að "nota" flugfreyjur, sem einhvers konar "GRÝLUR" í þessu máli.  Því hefur verið haldið fram að ef FFÍ (Félag Flugfreyja á Íslandi)semji ekki séu þær ástæðan fyrir því ef Icelandair fer í þrot.  Þetta virðist vera að ganga ágætlega upp hjá forráðamönnum Icelandair og þeir virðast hafa náð nokkuð mörgum í lið með sér (það þarf nú ekki meira til en að lesa nokkrar bloggfærslur hérna á mbl.is).  Sé þetta staðan (sem ég hef vissar efasemdir um), þá tel ég bestu lausnina vera þá að leyfa fyrirtækinu bara að fara í þrot í framhaldinu yrði svo tekið almennilega til í rekstrinum, það þyrfti að losa sig við "toppana" og stjórnina eins og hún leggur sig en leggja allt kapp á að sem flestir almennir starfsmenn verði endurráðnir og þá á endurskoðuðum kjörum.  ER EINHVER ÁSTÆÐA TIL ÞESS AÐ "RÍKIÐ" SÉ AÐ HLAUPA UNDIR BAGGA MEÐ ÞESSU FÉLAGI TREKK Í TREKK OG ÁSTÆÐAN FYRIR LÉLEGRI AFKOMU ER FYRST OG FREMST ÓSTJÓRN OG ÓRÁÐSÍA?  ER EITTHVAÐ VIT Í ÞVÍ AÐ EINKAVÆÐA HAGNAÐINN, ÞEGAR HANN ER, EN RÍKISVÆÐA TAPIÐ? Sendi forstjóri félagsins ekki bréf á starfsmennina, þar sem hann gaf í skyn að starfsmennirnir bæru ábyrgð á stöðu félagsins? Á endalaust reka "ræstingafólkið" ef eitthvað bjátar á í rekstrinum? OG SVONA Í RESTINA, VARÐANDI SÍÐUSTU AÐGERÐIR RÍKISSTJÓRNARINNAR Í COVID-19 MÁLUM, FLEST ÞESSI FERÐAÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI, SEM VAR VERIÐ AÐ "BJARGA", VORU KOMIN Í BULLANDI VANDRÆÐI FYRIR COVID-19 FARALDURINN, ÞANNIG AÐ ÞESSAR AÐGERÐIR GERA EKKERT ANNAÐ EN AÐ LENGJA Í HENGINGARÓLINNI OG AUÐVITAÐ ENDAR BARA MEÐ ÞVÍ AÐ ÞESSI FYRIRTÆKI FARA Í GJALDÞROT.  OG SVO KEMUR HVERGI FRAM HVERSU LENGI ÞESSI "BJÖRGUN" Á AÐ STANDA........


mbl.is Icelandair: Flugfreyjur höfnuðu „lokatilboðinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

Lítur út fyrir að sama háttalag er haft þarna á fróni, og þegar ég var og hét.  En í þá tíð, var það CargoLux, eða Hafskip.  Fyrirtækin á skallanum, en topparnir bjuggu í villum sem Hollywood vitleysingjarnir höfðu ekki einu sinni ráð á. Síðan var bara sett í "konkurs" og byrjað upp á nýtt ... með nýjar millur úr ríkiskassanum.

Örn Einar Hansen, 22.5.2020 kl. 16:43

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já þarna hittir þú naglann á höfuðið Örn Einar og það versta er að hvorki þjóðin eða gerendurnir virðast ætla að læra af fortíðinni..

Jóhann Elíasson, 22.5.2020 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband