ÍSLENDINGAR ÁKVÁÐU AÐ KYSSA Á VÖNDINN...........

Og horfa aðgerðarlausir á þegar auðlindirnar verða teknar af þeim og færðar "GERVIELÍTUNNI"  á silfurfati, nú og svo er næst á dagskránni að troða okkur inn í ESB og að sjálfsögðu lætur hann ekki sitt eftir liggja og samþykkir svoleiðis lagað eins og að drekka vatn.  Núna gafst okkur Íslendingum færi á að láta vita úr hverju við erum gerð en því miður var það tækifæri ekki notað OG ÞVÍ ER VEL HÆGT AÐ SEGJA AÐ ÞEIR SEM KUSU NÚVERANDI FORSETA HAFI FYRIRGERT RÉTTI SÍNUM TIL AÐ VERA NOKKUÐ AÐ KVARTA YFIR ÓRÉTTLÆTI OG SPILLINGU HÉR Á LANDI.....


mbl.is Lokatölur liggja fyrir: Guðni fær 92,2%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

En samkvæmt öllu, þá virðist hjarðhegðun landsmanna vera svo mikil að þeir gera bara það sem "gervielítan" og handbendi hennar segir fólki að gera.  Á meðan svo er þá verða engar breytingar og þá hafa kjósendur núverandi forseta AFSALAÐ SÉR ÖLLUM RÉTTI TIL AÐ TALA UM SPILLINGU OG ÓRÉTTLÆTI AF HENDI STJÓRNVALDA.  Ef farið er yfir "afrekalista" núverandi forseta á yfirstandandi kjörtímabili.  Það er best að rifja upp svona það helsta:

    • Hann skrifaði undir það að veita dæmdum barnaníðingi uppreist æru.  Hann sagði reyndar eftir á að það hefðu verið mistök af sinni hálfu og hann hefði beðið stúlkurnar, sem hlut áttu að máli afsökunar.  Ég er ekki alveg viss um að kaffiboð á Bessastöðum og afsökunarbeiðni hafi grætt þau sár sem mynduðust hjá fórnarlömbum þessa gjörnings og þau kom til með að bera til æviloka.

    • Hann fór ekki til Rússlands á HM í knattspyrnu, til að sýna Íslenska landsliðinu stuðning á stærsta íþróttaviðburði, sem Íslenskt lið hefur farið á.  Vegna þess að ríkisstjórnin var með þau tilmæli til hans að sniðganga þennan viðburð.  Ég veit ekki til þess að ríkisstjórn landsins hafi NOKKUÐ EINASTA BOÐVALD YFIR FORSETA ÍSLANDS.  Um leið tókst forsetanum að móða Pútín, forseta Rússlands, með því að svara ekki einu sinni boðsbréfi hans á HM í Rússlandi.

    • Þegar Donald Trump var kosinn forseti Bandaríkjanna, sendi forsetinn honum EKKI bréf til að óska honum til hamingju með kosningasigurinn, heldur bréf þess efnis að hann ítrekaði það við hann AÐ VIRÐA MANNRÉTTINDI í störfum sínum.

    • Hann skrifaði undir breytingar á orkulögum, sem þurfti að gera til að Orkupakki 3 gæti tekið gildi, þrátt fyrir að kannanir gæfu til kynna að yfir 80% landsmanna væru andvígir Orkupakka 3.  Nú er Orkupakki 4 á leiðinni og ætli það verði notað sem rök fyrir samþykkt hans að vegna þess að búið sé að samþykkja Orkupakka 1,2 og 3, verði að samþykkja Orkupakka 4?

    • Hann skrifaði undir lög um FÓSTUREYÐINGAR, sem heimila FÓSTUREYÐINGU (femínistar kalla þetta "MEÐGÖNGUROF" til að "fegra" verknaðinn), til loka 22 viku meðgöngu.

    • Hann skrifaði þegjandi og hljóðalaust undir lög um skipan dómara við nýstofnaðan Landsrétt, þrátt fyrir að honum hafi verið bent á að EKKI hafi verið farið að lögum við skipan þeirra.  Og það sem meira er hann laug til um framvindu málsins í "Kastljósinu" hjá Einari Þorsteinssyni og varpaði allri ábyrgð yfir á Sigríði Á. Andersen, á því KLÚÐRI sínu.  Svona ósannindamann velur þjóðin sem forseta sinn.  Hvað ætlar forsetinn að  gera þegar Mannréttindadómstóllinn dæmir þess efnis að ekki hafi verið farið að lögum við skipan dómara í Landsrétt?

    • Og síðast en ekki síst, þá sagði hann það EFTIR að hann náði kjöri sem forseti Íslands árið 2016, að hann myndi ALDREI fara gegn ríkjandi stjórnvöldum, með því að virkja 26 grein stjórnarskrárinnar.  Ég er nokkuð viss um að forsetakosningarnar árið 2016 hefðu farið á annan veg ef hann hefði tilkynnt um þessa afstöðu sína FYRIR forsetkosningarnar.

    Þetta er einungis brot af "axarsköftum" forsetans á þessu kjörtímabili og finnst fólki virkilega að þessi maður hafi unnið til þess að verða endurkjörinn til embættisins?  ÞAÐ ER ALVEG Á HREINU AÐ MAÐURINN ER EKKI AÐ VINNA FYRIR ÞJÓÐ SÍNA - HELDUR VINNUR HANN FYRIR FÓLK, SEM VINNUR AÐ ÞVÍ AÐ EIGNAST AUÐLINDIR LANDSINS OG AÐ KOMA LANDINU UNDIR ERLENDA STJÓRN.  ÞESSI MAÐUR VIRÐIST HALDA AÐ STJÓRNARSKRÁIN SÉ BARA EITTHVAÐ OFAN Á BRAUÐ......

    Jóhann Elíasson, 28.6.2020 kl. 09:10

    2 identicon

    Vel mælt Jóhann,þarna erum við sammála.Sorglegt hvað þjóðin er sofandi.

    Björn. (IP-tala skráð) 28.6.2020 kl. 10:11

    3 Smámynd: Jóhann Elíasson

    Þakka þér fyrir innlitið Björn.  Já nú er tilefni til að flagga í "hálfa stöng"........

    Jóhann Elíasson, 28.6.2020 kl. 10:33

    4 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

    Ég þakka Guðmundi Franklín fyrir að hafa farið í þessar kosningar. Nú liggur það alveg fyrir að stjórnvöld hafa öll völd á sínum höndum og ekkert getur stoppað það sem koma skal. 

    Sigurður I B Guðmundsson, 28.6.2020 kl. 10:54

    5 Smámynd: Jóhann Elíasson

    Já því miður er það svo Sigurður.  Guðmundur Franklín Jónsson á heiður skilinn fyrir það að reyna að koma í veg fyrir "RAGNARÖKIN" sem eru framundan.....

    Jóhann Elíasson, 28.6.2020 kl. 11:40

    6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

    Ég hef alltaf sagt það að hundseðlið, þrælsóttin og hjarðhegðun Íslendinga verður sjalfstæðii okkar að falli.

    Það að landsbyggðarfólk skulli hafa veitt honum atkvæði, vitandi af því að þesssi forseti mun ekki gera neitt

    þegar kemur að loka undirskrift að samþykkja allan kvóta til elitunar, er með eindæmum.

    Sýnir sig einnig í skoðanakönnunum hvað íslendgum er orðið sama með stjórn borga og lands þegar

    landráðafylkinginn mælist næst stærsti flokkurinn með LOGA sem formann. Er landinn á lyfjum eða hvað..??

    Það er alltaf að koma betur og betur í ljós að þessari þjóð er ekki bjargandi frá þessari sjálfseiðingarkvöt.

    Svo satt og sorglegt er það.

    Sigurður Kristján Hjaltested, 28.6.2020 kl. 12:52

    7 Smámynd: Jóhann Elíasson

    Tek undir hvert einasta orð þitt Sigurður og þú tekur síður en svo of djúpt í árina.....

    Jóhann Elíasson, 28.6.2020 kl. 13:10

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband