LITLAUS OG FREKAR LEIÐINLEG KEPPNI..........

Það var ekki fyrr en á fjórða síðasta hring sem eitthvað fjör fór að færast í leikinn, þegar dekkin fóru að springa hjá mönnum.  Fyrstur af þeim fremstu var Bottas til að verða fyrir barðinu á sprungnu dekki, en hann var búinn að keyra nokkra hringi með hægra framdekkið mjög skemmt og kannski var spurning hvort það myndi hanga út keppnina, en því miður fyrir hann þá fór það endanlega.  Enn var Hamilton með heppnina í liði með sér þegar vinstra framdekkið sprakk á bíl hans á lokahringnum og hann náði að skrölta í mark sem sigurvegari keppninnar.  Maður fer að halda að það sé eitthvað til í þeim sögusögnum, að hann hafi selt djöflinum sálina.  En mikið óskaplega fann ég til með Max Verstappen að hann skyldi fara inn  og skipta um dekk, þegar sprakk hjá Bottas, hefði hann sleppt því hefði hann unnið í dag......


mbl.is Skrölti í mark á þremur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Vá, að horfa á bíla fara hring eftir hring er eitthvað sem ég hef ekki áhuga á frekar en hjólreiðakeppni t.d. tour de france. En svona er lífið, við erum ekki öll eins né með sömu áhugamálin!!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 2.8.2020 kl. 17:28

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

P.S. Hann efur kannski sungið textan hans Ómars: "Þrjú hjól undir bílnum."

Sigurður I B Guðmundsson, 2.8.2020 kl. 17:38

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það má segja að það séu nokkrar hliðar á þessu  Sigurður.  Einu skiptin, sem mér finnst frekar leiðinlegt að horfa á Formúluna (og horfa á bílana keyra hring eftir hring) er þegar Öryggisbíllinn kemur inn á brautina en þá VEIT maður að ekkert verður um að vera á meðan hann er á brautinni.  En Sigurður ég var einu sinni með nákvæmlega sama hugarfar gagnvart Formúlunni og þú ert með núna.  Það sem breytti þessari afstöðu hjá mér var að ég kom til kunningja míns, en við höfðum mælt okkur mót og ætluðum í veiði.  Ég kom til hans og var snemma í því og einmitt þegar ég kom var hann að horfa á FORMÚLUNA og ekki smuga að hægt væri að slíta hann frá kassanum.  Ég gat nú ekki stillt mig um að láta miður fallegar athugasemdir falla um þetta þar á meðal þetta með að horfa á bíla keyra hring eftir hring.  Hann útskýrði þá allt fyrir mér og ég horfði á þetta með honum allt til enda.  Þetta var á þeim árum sem Mika Hakkinen og Michael Scumacher börðust sem harðast og þá voru  bensínáfyllingar leyfðar.  Eftir þetta fór ég að fylgjast með Formúlunni en að liðu milli tvö og þrjú ár þar til ég "féll" alveg.......

Jóhann Elíasson, 2.8.2020 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband