ER RÍKSSTJÓRNIN EKKI Á SAMA "BÁTI" OG AÐRIR..........

Það á ekki að gilda eitthvað allt annað um fólk eftir starfsstéttum.  Þetta fólk er ekkert "ÓMISSANDI" og á bara að fara í sóttkví eins og aðrir  og það er ekkert flókið við það að þetta sé ríkisstjórnin.  Kirkjugarðar landsins eru fullir af fólki, sem hélt að það væri ómissandi, en einhvern veginn gengur allt áfram þó að þetta fólk hafi fallið frá.  Til hvers er þetta fólk eiginlega með marga aðstoðarmenn ef þeir geta svo ekkert gert þegar á reynir????????


mbl.is Ferlið eins fyrir alla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, Já hún er ekki öll vitleysan eins, og það er mikið rétt hjá þér með þetta blessaða fólk sem við kusum inn á þing og er í forsvari fyrir land og þjóð. En þetta lýðræðisþjóðfélag sem er eitt meta bananalýðveldi heims mismunar fólki hægri vinstri, og það verður svo þangað til bylting verður gerð!

Kær kveðja frá Stóradal.

Helgi Þór Gunnarsson, 21.8.2020 kl. 17:50

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Komdu blessaður Helgi og virkilega gaman að sjá þig hérna inni.   Já er það virkilega að við séum svo vitlaus að kjósa þetta lið yfir okkur trekk í trekk?  Við höfðum jú tækifæri í síðustu forsetakosningum, en hvernig fór?  Sitjandi forseti var endurkjörinn með yfir 90% atkvæða.  Ég er ekki alveg að skilja þetta flestir sem ég umgengst viðurkenna ekki að hafa kosið núverandi forseta, en hvernig er þá hægt að útskýra úrslitin?  Það sem fólki dettur í hug að átt hafi verið við kosninguna.  RÚSSNESK KOSNING HVAÐ.  Var nokkuð eftirlit með kosningunum, er kosningar hér á landi það öruggar að ekki sé þörf á eftirliti????

Bestu kveðjur af Suðurnesjunum.

Jóhann Elíasson, 21.8.2020 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband