RÍKISSTJÓRNIN VIRÐIST EKKI ÆTLA AÐ LÁTA LÍTINN, HÁVÆRAN MINNIHLUTAHÓP KÚGA SIG Í ÞESSU MÁLI...

Hér á landi þyrftu að vera sömu reglur gagnvart hælisleitendum og umsækjendum um dvalarleyfi og eru til dæmis í Noregi.Þessar reglur koma í veg fyrir það að verið sé að NOTA fjölmiðla landsins til að koma af stað öðru eins "tilfinningaklámi" og gert er hér.  Reglugerðin gengur út á það að eigi að fara með málið í fjölmiðla, SKULI FJÖLMIÐLARNIR HAFA AÐGANG AÐ ÖLLUM GÖGNUM MÁLSINS,  Þessi reglugerð á að tryggja það að almenningur verði ekki leiddur áfram á einhverju "tilfinningaklámi" og geti þá séð málið frá ÖLLUM hliðum  og tekið UPPLÝSTA ákvörðun.  Ég óska fólkinu góðrar framtíðar og kannski heimalandið sé bara mun  betri kostur fyrir þau en þau höfðu haldið.........


mbl.is „Er ekki fyrsta brottvísunin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Jóhann,ég tek undir óskir þínar með fólkinu....það minnir mig á að Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri,sagð að Egypzka fjölskyldan hefði getað farið heim eftir áramótin,eftir að henni var synjað um hæli.En það vantaði vegabréf fyrir tvö barnanna,en foreldrarnir ekki viljað sækja um þau,það hefði tekið stuttan tíma.En þar sem útlendingastofnun varð að útvega þau sjálf náði það fram til Covid-19 sem var langur tími.Þess vegna dvöldu þau mikið lengur en æskilegt hefði verið. Mb.Kv.

Helga Kristjánsdóttir, 16.9.2020 kl. 03:14

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Blessuð Helga og þakka þér fyrir innlitið og athugasemdina.  Þarna kemur þú inn á merg málsins, ef Reglugerð í samræmi við Norsku reglugerðina hefði verið í gildi hér, hefði þetta komið fram áður og ekki hefði verið hægt að reka málið eins í fjölmiðlum og gert er, þannig að ekki hefði verið fjallað um málið EINGÖNGU á forsendum fjölskyldunnar og höfðað eingöngu til tilfinninga almennings og nálið skrumskælt, eingöngu til að ná fram bara EINNI hlið þess.  En eins og við vitum hafa Öll mál minnst TVÆR hliðar........

Jóhann Elíasson, 16.9.2020 kl. 04:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband