ÚRSLITIN ERU EKKI STÆRSTA MÁLIÐ FYRIR "STRÁKANA OKKAR" HELDUR AÐ ÞEIR EIGI GÓÐAN LEIK.....

Eins og á móti Frökkum, þó ég verði nú að viðurkenna að úrslitin ollu mér vonbrigðum, en við því var ekkert að gera og ekki við "strákana okkar" að sakast, Frakkarnir voru bara ógnarsterkir og unnu mjög sanngjarnan sigur.  En hvernig sem leikurinn við Norðmenn á eftir fer, þá geta "strákarnir okkar" og Guðmundur Þórður Guðmundsson verið ánægðir með sinn hlut á þessu móti.  Ég er svolítið ósáttur við hversu óvæginn vinur minn og fyrrum nemandi Logi Geirsson, er í garð Guðmundar Guðmundssonar.  Logi Geirsson er eðalmaður og mjög vandaður, helst dettur mér í hug að þeir Guðmundur eigi einhver óuppgerð mál og það hafi áhrif á það hversu óvæginn hann er í umfjöllun sinni.  Svo verður að hafa það í huga að Logi er mikill keppnismaður og mjög hreinskilinn og ekki skrítið að margt  sé sett fram í hita leiksins.  Svo er anað sem þarf að hafa í huga,ÞAÐ ER ENGINN MAÐUR SEM HEFUR NÁÐ ÖÐRUM EINS  ÁRANGRI MEÐ ÍSLENSKA HANDKNATTLEIKSLIÐIÐ OG GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON OG ALLT TAL UM AР HANS TÍMI SÉ LIÐINN ER BARA TÓMT KJAFTÆÐI, ÞAÐ SÁST VEL Í LEIKNUM GEGN FRÖKKUM.  Hann hefur ekki alltaf haft úr miklu að moða en hann hefur NÝTT vel það sem hann hefur haft og gerir vonandi áfram, við megum ekki gleyma því að við erum bara 350.000 +.  ÍSLENDINGAR ERU LÁNSAMIR AÐ FÁ AÐ NJÓTA KRAFTA GUÐMUNDAR ÞÓRÐAR GUÐMUNDSSONAR.....


mbl.is Er jafntefli betra fyrir Norðmenn en sigur gegn Íslandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband