ER ÞAÐ ALVEG Á HREINU AÐ MAÐURINN HALDI RÉTTINDUM TIL AÐ VERA STÝRIMAÐUR???

Skipstjórnarréttindin fá menn þannig að fyrst klára menn nám í stýrimannaskóla og eftir ákveðinn tíma "á dekkinu" (flestir fara nú ekki í "skólann" fyrr en þeir hafa verið þennan tíma "á dekkinu"og fá þá stýrimannaréttindin beint)fær viðkomandi réttindi sem stýrimaður og eftir að hafa verið stýrimaður í ákveðinn tíma fær viðkomandi skipstjórnarréttindi. Þegar menn missa ökuskírteinið þá missa menn ÖLL ökuréttindi gildir eitthvað annað ef menn missa skipstjórnarréttindi?  Eins og áður er lýst ávinna menn sér skipstjórnarréttindi eftir að hafa verið ákveðinn tíma sem stýrimaður og því skyldi maður halda að við að missa skipstjórnarréttindin missi sá hinn sami ÖLL réttindi til að stýra skipi.  Því tel ég að ef "GÆSLAN" fer um borð í skipið, til eftirlits, kemur sennilega í ljós að maðurinn er réttindalaus og þá eru skipstjórinn, útgerðin og viðkomandi maður í slæmum málum.  Í þessu máli er ég alveg sammála Drífu Snædal þess efnis að refsingin, sem maðurinn fékk, er ekki í neinu samræmi við alvarleika brotsins og svo er það alveg á hreinu að útgerðin var með "puttana" í þessu máli alveg frá upphafi, þess vegna er svo áreiðanlegt að þegar upp er staðið VERÐUR ÞAÐ SKIPSTJÓRINN SEM VERÐUR LÁTINN TAKA Á SIG ALLA ÁBYRGÐINA OG ÞVÍ VERÐUR HANN  AÐ STANDA Í LAPPIRNAR GAGNVART ÚTGERÐINNI (hann verður að þekkja réttindi sín og skyldur).....


mbl.is Segir óhugsandi að útgerðin hafi ekki ráðið för
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Ef eg missi bílprófið vegna gáleysis - get eg þá ekki bara haldið áfram að keyra sem nynemi í akstri hecool

Erla Magna Alexandersdóttir, 5.3.2021 kl. 19:01

2 Smámynd: Óskar Kristinsson

Þetta er bara fíflafiffiry.Auðvitað er maðurinn próflaus!!! Halló halló Landhelgisgæsla???

Óskar Kristinsson, 5.3.2021 kl. 19:23

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég þakka ykkur báðum fyrir innlitið og athugasemdirnar og þá veit ég líka að ég er ekki einn um þessa skoðun.....

Jóhann Elíasson, 5.3.2021 kl. 19:56

4 identicon

Þetta er alveg makalaust mál allt saman, og það er hreinasta hneyksli, að maðurinn skuli hafa verið ráðinn stýrimaður á þeim sama togara og hann hagaði sér svona svínslega á sem skipstjóri gagnvart áhöfninni. Hann hefur ekkert á skip að gera eftir þetta, finnst mér. Hér hefði svo faðir minn sagt, að þetta væri útgerðinni líkt, enda háði hann marga orustuna við útgerðarmenn á sinni tíð, meðan hann var formaður Sjómannasambands Íslands. Útgerðarmenn hafa ekkert breyst í gegnum tíðina, sýnist mér á öllu, og halda víst, að þeir komist upp með hvað sem er, og þurfi ekki að fara eftir neinum lögum eða dómum.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.3.2021 kl. 14:38

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna erum við algjörlega á sama máli Guðbjörg Snót Jónsdóttir.Lögin eru  víst fyrir okkur hin til að fara eftir en vissir aðilar telja sig yfir lögin hafna.  En spurningin er: VERÐUR ÞESSI SVÍVIRÐA LÁTIN VIÐGANGAST???  Verður "GÆSLAN" send á skipið eða verður málið bara l "látið lognast útaf"?????????

Jóhann Elíasson, 6.3.2021 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband