"GOS OG HRAUN"...........

"Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott" sungu Vilhjálmur og Ellý Vilhjálms, hér áður fyrr og kannski sannast það hér.  Þetta var einna skásti staðurinn sem eldgos gat komið upp hér á Reykjanesi fjarri byggð og mannvirkjum.  Skítt með það þótt Suðurstrandarvegurinn rofni það sem er fyrir mestu er að ekki varð manntjón og vonandi eru þá "jarðskjálftarnir" að mestu úr sögunni (vel á minnst ég var að finna fyrir einum rétt í þessu).  En um leið og opnar búðin ætla ég að fara og fá mér gos og hraun (hún opnar kl 10:00).......


mbl.is „Pínulítið gos“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Snemmbúið föstudagsgrín!!

Sigurður I B Guðmundsson, 20.3.2021 kl. 10:28

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei ekki alveg Sigurður,  föstudagsgrínið er ekki fyrr en 26 mars.  Ég fór inn á vefinn hjá Aftenposten og þar er sagt að gos sé hafið nærri Reykjavík og ALLT flug hafi stöðvast og á ABC nyheter er sama frétt.  Ætli salan á blöðunum hafi eitthvað minnkað????????

Jóhann Elíasson, 20.3.2021 kl. 10:55

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Svona eru "fréttamiðlanir" Jóhann, ef fréttin er ekki nógu krassandi þá er búin til saga sem selur. En ætli sala á gosi og hrauni aukist ekki við eldsumbrotin nú, sérstaklega á Suðurnesjum. Verði þér að góðu, borðaðu mikið hraun og drekktu mikið gos wink

Tómas Ibsen Halldórsson, 20.3.2021 kl. 11:37

4 identicon

Gos. Hehh. Fáðu þér bara límonaði.smile

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 20.3.2021 kl. 11:38

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já ég fer varlega í gosið og hraunið.  En ætli Helgi í Góu fari ekki vel út úr þessu??????wink

Jóhann Elíasson, 20.3.2021 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband