ENDA ER EKKI HÆGT AÐ GERA EITTHVAÐ LÖGLEGT AÐ "HLUTA" TIL..........

Þessi efni eru ÓLÖGLEG hér á landi og þar af leiðandi getur ekki verið mögulegt að gera neyslu þeirra LÖGLEGA ef menn/konur eru bara með efnin í hæfilega "litlum" skömmtum?  Þetta hlýtur hver heilvita maður að sjá????


mbl.is Geta ekki stutt frumvarp um afglæpavæðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Það virðist vera sama hvað þessi ráðherfa gerir.

Klúður og lögbrot og núna lögleiðing á ólöglegum eitur lyfjum.

Þessi manneskja er stórhættuleg og þyrfti að koma fyrir á viðeigandi stofnun.

Sigurður Kristján Hjaltested, 6.5.2021 kl. 15:03

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Satt segir þú og svo þykist þetta lið leggja þetta frumvarp í nafni MANNÚÐAR að mínu áliti er þetta frumvarp lagt fram Í NAFNI MANNVONSKU OG UPPGJAFAR........

Jóhann Elíasson, 6.5.2021 kl. 16:23

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Hún var bólusett í dag blessunin og segir að þetta sé allt saman smá eins og í söngleik, -allt svo vel skipulagt í Höllinni.

Þeir sem líða út af eftir sprautuna eru bornir til hliðar, þangað til þeir skjögra á fætur eins og eiturlyfjasjúklingar í fráhvarfi.

Það er spurning hvort rétt sé að glæpavæða uppeldi að hluta til, svona í ljósi reynslunnar með þessa ráðherfu?

Magnús Sigurðsson, 6.5.2021 kl. 18:57

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kannski það hafi  bara orðið eitthvað stafarugl í frumvarpinu: Það eigi að "afglæpavæða" bólusetningalyfin???? undecided

Jóhann Elíasson, 6.5.2021 kl. 19:58

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ýmislegt getur verið ólöglegt þó slíkt brot sé ekki refsivert. Sem dæmi má nefna sölu á vændi, sem er ólögleg þjónusta, en salan sjálf er ekki refsiverð.

Ýmislegt getur einnig verið ólöglegt að eiga í meira mæli en lög kveða á um. Sem dæmi má nefna fiskveiðikvóta.

Valdið til að ákveða slíkt er hjá löggjafanum.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.5.2021 kl. 00:11

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er ekki margt sameiginlegt með ólöglegum fíkniefnum og og kvóta sem dæmi má nefna að það er ólöglegt með öllu að eiga og neyta fíkniefna en það EKKERT ólöglegt við kvótann nema það má ekki EIGA meira en 12% af heildarkvótanum á landinu.  En svo kemur þú að einum furðulegustu lögum sem eru til á landinu; sem sagt "vændislögunum" svo kölluðu en að það sé heimilt að selja vændi en óheimilt að kaupa það þekkist hvergi í heiminum nema á Íslandi og Svíþjóð en samt sem áður finnst mér þetta tvennt ekki standast samanburð við ólögleg fíkniefni......

Jóhann Elíasson, 7.5.2021 kl. 06:48

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er ekki ólöglegt að neyta fíkniefna.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.5.2021 kl. 12:20

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur hættu þessum útúrsnúningi, þú veist alveg hvað ég á við.   En ef þú skyldir ekki vita það, þá eru til LÖGLEG FÍKNIEFNI sem eru áfengi og tóbak og ÓLÖGLEG FÍKNIEFNI sem ég nenni ekki að telja upp hver eru og ÞAÐ ERU ÞAU SEM ER ÓLÖGLEGT AÐ NEYTA..................

Jóhann Elíasson, 7.5.2021 kl. 15:28

9 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta er enginn útúrsnúningur heldur staðreynd. Sjá: 65/1974: Lög um ávana- og fíkniefni | Lög | Alþingi

Samkvæmt 2. gr. laganna er varsla og meðferð tiltekinna ávana- og fíkniefna óheimil. Hvergi í lögunum er lagt bann við neyslu slíkra efna.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.5.2021 kl. 22:42

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Guðmundur vertu ekki svona þrjóskur, þú ert stundum eins og óþroskaður krakki sem getur ekki viðurkennt að hafi rangt fyrir sér.  HVERS VEGNA HELDUR ÞÚ AÐ SÉ TALAÐ UM ÓLÖGLEG FÍKNIEFNI OG HELDUR ÞÚ VIRKILEGA AÐ ÞAÐ VÆRI VERIÐ A LEGGJA FRAM FRUMVAR UM "LÖGLEIÐINGU" NEYSLUSKAMMTA EF ÞAÐ VÆRI ÓÞARFI GAGNVART LÖGUM????

Jóhann Elíasson, 8.5.2021 kl. 06:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband