SIGUR ÍTALA VAR FULLKOMLEGA VERÐSKULDAÐUR..........

Þeir héldu boltanum mun betur en Englendingarnir og útkoman varð sú að leikurinn fór mun meira fram á vallarhelmingi Englendinganna og þeir geta eiginlega þakkað Pickford (markmanni sínum) að leikurinn fór í vítaspyrnukeppni því tvisvar sinnum varði hann alveg meistaralega.......


mbl.is Ítalía Evrópumeistari í annað sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Sammála þér en það dapurlega við þetta er að það kemur alltaf betur og betur í ljós hvað fótboltabullurnar eru í raun fjölmennar í Englandi. 

Sigurður I B Guðmundsson, 12.7.2021 kl. 10:23

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Sæll Jóhann! Það verður alltaf kærkomið efni þegar RUV sýnir frá íþróttaleikjum og söngvakeppnum þegar fréttir eru oftast með styttra móti.Ég er sammála þér að Ítalir spiluðu mun betur og hafa yfir að ráða teknik sem maður dáðist að í gamla daga.  Okkar lið hefði sómt sér vel þarna en þeir spila álíka knattspyrnu og Englendingar og eimir ennþá eftir af "kikk and run"stílnum.En því miður enda altof margir leikir í vítaspyrnu. Það er líklega það eina raunhæfa sem hægt er að grípa til eftir jafntefli,nema að kasta upp peningi til að fá úrslit. 

Helga Kristjánsdóttir, 12.7.2021 kl. 11:27

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður, það var til dæmis mjög dapurlegt að sjá það að Enskir stuðningsmenn PÚUÐU þegar Ítalski þjósöngurinn var spilaður og fleiri dæmi eru um dapra framkomu þeirra.....

Jóhann Elíasson, 12.7.2021 kl. 11:49

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Helga við getum ekki látið okkur "dreyma" um það að RÚV setji fjármagn í eitthvað sem almenningur vill sjá.  Hefur þú tekið eftir því hvað dagskránni hefur farið aftur við það eitt að fyrrverandi lögreglustjórinn tók við starfi útvarpsstjóra????  Samt er endalaust vælt yfir fjárskorti, ætli vandinn sé ekki frekar hvernig er farið með þá fjármuni sem eru til ráðstöfunar????  Og þetta á ekki eingöngu við um RÚV................

Jóhann Elíasson, 12.7.2021 kl. 11:56

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Æjá eg var búin að gleyma þessum frækna útvarpsstjóra,hann fær kannski snefil í laun. Aðeins að leiknum aftur,næst elsti sonur minn hringdi og ég gat ekki annað en spurt hann um leikinn.Hans melding var; að knattspyrnumenn Englands væru stressaðir sumir hræddir við gagnrýni oft grófa, í blöðum og miðlum út um allt,þess vegna spila þeir sjaldan af hreinni gleði í landsleikjum. Þeir skera sig úr þeir ölhreyfu sem sækja leiki,en hann sjálfur varð hneysklaður á púinu sem einhverjir þeirra framkölluðu meðan þjóðsöngur Dana var leikinn.En prinsinn bað menn að koma ekki svona fram...Mb.Kv.

Helga Kristjánsdóttir, 12.7.2021 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband