ÞAÐ GEFUR AUGA LEIÐ AÐ "UPPKOSNING" Í SV-KJÖRDÆMI ER ALGJÖRLEGA ÚT Í HÖTT.......

Það þarf nú ekki mikinn speking til að sjá það. Ef yrði kosið aftur í einu kjördæmi gæti það haft í för með sér að úrslit kosninganna myndu "skekkjast" verulega.  Fólk veit hvernig kosningarnar fóru í öðrum kjördæmum og það væri VERULEG HÆTTA á að fólk myndi breyta kjöri sínu samkvæmt því. En það virðist vera einhver MIKILL "SPEKILEKI" á Alþingi sérstaklega hjá þingmönnum vissra stjórnmálaflokka.  Svo eru menn að tala um hvort endurtalningin eða upphaflega talningin ættu að gilda.  Miðað við það sem ég hef heyrt, er að auðir og ógildir kjörseðlar ekki verið teknir með í seinni talningunni, sé það rétt þá er ekki spurning að fyrri talningin á að gilda..............


mbl.is Skiptar skoðanir um endurtalninguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er ekki að skilja hverning auðir og ógildir seðlar geta breytt niðurstöðu??

Sigurður I B Guðmundsson, 11.10.2021 kl. 11:23

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Sigurður þeir eru ákveðið hlutfall niðurstöðunnar og með því að taka þá út er þetta ákveðna hlutfall ekki með í talningunni......

Jóhann Elíasson, 11.10.2021 kl. 12:09

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Úrslit kosninga ráðast af gildum atkvæðum eingöngu. Auð og ógild atkvæði breyta engu þar um.

Guðmundur Ásgeirsson, 11.10.2021 kl. 14:29

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvers vegna hafði "seinni" talningin þá áhrif á fimm þingmenn, þar sem einungis munaði fjórum atkvæðum milli talninganna Guðmundur????????

Jóhann Elíasson, 11.10.2021 kl. 15:10

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Vegna þess að eftir seinni talningu komu breytt úrslit og við það fór í gang svokölluð "hringekja" jöfnunarsæta vegna kerfisbundinna víxlverkunaráhrifa.

Það munaði svo fáum atkvæðum á næstu mönnum inn að jafnvel breyting um örfá atkvæði gat haft svona víðtæk áhrif á jöfnunarmenn um landið allt.

Guðmundur Ásgeirsson, 11.10.2021 kl. 15:25

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það þarf að útskýra svona "fimleikaæfingar" almennilega............

Jóhann Elíasson, 11.10.2021 kl. 17:05

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er alls ekki einfalt að útskýra jöfnunarmannakerfið á mannamáli, en þar er þó ekki um að ræða neinar fimleikaæfingar heldur gilda um það skýrar reglur og reikniformúlur þó flóknar séu.

Guðmundur Ásgeirsson, 11.10.2021 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband