VONANDI HEFUR ARNAR ÞÓR VIÐARSSON HORFT Á LEIKINN HJÁ STELPUNUM?

Það er kannski möguleiki á því að hann hafi eitthvað getað lært???  Annars má nú segja það Tékkunum til varnar (þeir voru sko engir "gúmmítékkar").  Þær voru aðallega óheppnar en það verður ekki tekið af stelpunum  okkar að þær spiluðu mjög vel og nýttu færin sín mjög vel.  Ég verð nú að segja að ég var svolítið ósáttur við það að Berg­lind Björg Þor­valds­dótt­ir skyldi ekki fá fyrsta mark Íslands skráð á sig,en eins og sagt er: "shit happens".  Stórleikur Söndru  í markinu varð til þess að Tékknesku stelpurnar skoruðu ekki.  Þetta var jafn og skemmtilegur leikur og reyndar gefa úrslitin ekki alveg rétta mynd af honum.  Hvar ætli stelpurnar okkar séu á FIFA-listanum?????????


mbl.is Íslenskur stórsigur í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ef hann hafi ekki verið á fundi hjá Öfgum þá hefur hann væntanlega verið að horfa á! Lært eitthvað? Þegar stórt er spurt þá er oft fátt um svör!!

Sigurður I B Guðmundsson, 23.10.2021 kl. 10:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svei mér þá ég held að þessi maður hafi frekar lítinn áhuga á að læra eitt eða neitt og kannski segir árangurinn hjá honum í starfi allt sem segja þarf..

Jóhann Elíasson, 23.10.2021 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband