SVIK VIÐ KJÓSENDUR Í UPPSIGLINGU.................

Það er náttúrulega alveg með ólíkindum að flokkur með 12,6% fylgi og þar að auki TAPAÐI ÞREMUR þingmönnum frá kosningum til Alþingis í kosningunum fyrir þessar kosningar, SKULI FÁ FORSÆTISRÁÐHERRAEMBÆTTIÐ OG SAMA RÁÐHERRAFJÖLDA OG Í SÍÐUSTU RÍKISSTJÓRN.  Þarna hljóta þeir Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson að slá heimsmet í AUMINGJASKAP..................


mbl.is Ráðherrastólar næst á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Forseta tetrið átti auðvita að láta Sigurð Inga eða Bjarna Ben að fá umboðið til að mynda ríkisstjórn. Það er eins og það sé einhver hræðsla við að hafa VG í minnihluta. En aumingjaskapurinn er algjör eins og þú segir.

Sigurður I B Guðmundsson, 15.11.2021 kl. 15:46

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Tek sko undir hvert orð hjá þér Sigurður, það er ekki nóg með að  það sé verið að troða gulrótinni í ra....... á okkur kjósendum heldur er verið að taka okkur í ra........

Jóhann Elíasson, 15.11.2021 kl. 15:59

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

VG fékk falleinkunn en Sjálfstæðis og Framsókn ætla að verðlauna þeim, fyrir hvað veit ég ekki. Þjóðin hafnaði VG, Framsókn var sigurvegari kosninganna og Flokkur fólksins í öðru sæti, en þeim haldið úti í kuldanum þar sem VG ætti að vera. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að gera neinar rósir, stór hluti þeirra sem kusu þann flokk hafa snúið sér annað, flokkurinn hefur misst það traust sem hann hafði haft í marga áratugi.

Tómas Ibsen Halldórsson, 15.11.2021 kl. 16:25

4 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Hvor flokkurinn, V eða D ætlar að taka skellinn þegar kosið verður næst? Annar hvor verður að gefa það mikið eftir í umhverfis og heilbrigðismálum að hann fær skell. Allir vilja græna orku en ekkert má virkja að mati VG, það má bara horfa á hálendið og njóta. Það má ekki bera skít á tún lengur, skemmir sennilega útsýnið og einhverjir villast þá í sínum uppáhalds þef. Til að taka af biðlista í heilbrigðiskerfinu þarf að fela einkarekstri eitthvað af þessari þjónustu. Slíkt myndi ekki breyta neinu varðandi kostnað skattgreiðenda nema helst til batnaðar, ríkið borgar hvort eð er. En kommúnisminn er svo gegnsýrður inn í núverandi heilbrigðisráðherra að hún sé svart alls staðar þar sem einkarekstur er. Auðvitað á að henda VG út og setja FF inn. En er þetta ekki bara eitthvert leikrit sem puðrast út í loftið áður en langt um líður ? En við skulum bara biðja til Almættisins um að ekki fæðist úr þessu VSB en B hefur nú alltaf verið auðkeypt.

Örn Gunnlaugsson, 15.11.2021 kl. 17:42

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Vel mælt Tómas.  Í það minnsta botnar hinn almenni kjósandi ekkert í hvað er í gangi........

Jóhann Elíasson, 15.11.2021 kl. 18:49

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú kemur með helvíti góðan vinkil á þetta Örn og allt sem þú segir er hárrétt og þá sérstaklega þegar kemur að því að skoða sjónarhorn VG á náttúruna og náttúruverndin.  Áhugaverðast fannst mér sú skoðun að kannski ætti þetta eftir að springa í loft upp, óskaplega yrði ég nú ánægður ef þú reyndist sannspár þar.............

Jóhann Elíasson, 15.11.2021 kl. 18:56

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Guðni Forseti er ekki einu sinni á landinu: stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=a96b2932-7594-43af-b1fe-0d569bc37728

Nr. 122/2021

11. nóvember 2021

AUGLÝSING

um meðferð forsetavalds í fjarveru forseta Íslands.


Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, fór til útlanda 11. nóvember 2021.

Í fjarveru hans fara forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar með vald forseta Íslands skv. 8. gr. stjórnarskrárinnar.

 

Forsætisráðuneytinu, 11. nóvember 2021.

Katrín Jakobsdóttir.

Bryndís Hlöðversdóttir.

A deild - Útgáfud.: 15. nóvember 2021

Guðmundur Ásgeirsson, 15.11.2021 kl. 20:07

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessar fréttir koma ekki á óvart Guðmundur, reyndar kemur ekkert á óvart lengur varðandi þennan mann.  Það sorglega er að við Íslendingar fengum tilvalið tækifæri til að losa okkur við þessa liðleskju, en því miður var það tækifæri EKKI notað og það er kannski ástæðan fyrir því að aðstæður eru svona slæmar í dag..............

Jóhann Elíasson, 15.11.2021 kl. 20:42

9 identicon

Klappstýrustóllinn er valdalaust embætti og er notaður eingöngu til að hórast í samkvæmum hefðarapparats, hér heima sem erlendis.

Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 23:37

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Heiðar Þór þakka þér fyrir innlitið.  Embættið er að mestu valdalaust, en forseti lýðveldisins, hefur samkvæmt hefð veigamikið verkefni við stjórnarmyndun í kjölfar kosninga og það hefur hann algjörlega sniðgengið eftir þessar kosningar.  Þessi vesalingur sem situr nú á Bessastöðum virðist vera það aumasta sem setið hefur á Bessastöðum.  Ég hef aldrei kosið þennan mann og mun aldrei gera.  Það eru gerðar vissar lágmarkskröfur til forsetans og hann hefur ekki einu sinni uppfyllt þær.  Er nokkur ástæða til að hafa rándýran "veislustjóra" á Bessastöðum????????????

Jóhann Elíasson, 16.11.2021 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband