"AÐ HENGJA BAKARA FYRIR SMIÐ"...........

Fíllinn í stofunni er reyndar AÐALÞJÁLFARI A landsliðs karlalandsliðsins í knattspyrnu en ekki sá sem hefur "reynt" að halda skútunni á floti undanfarið en lekinn var bara orðinn of mikill til þess að það bæri nokkurn árangur að vera að "ausa með teskeið".  En AÐALÞJÁLFARINN notar ekki einu sinni  teskeið hann hefur hingað til notað stórvirkar vinnuvélar við að moka yfir sjálfan sig og virðist bara ganga þokkalega í því verkefni.  Það verður ekki betur séð en að þessi endi bara á einn veg, það er bara einn maður sem á eftir að sjá það og viðurkenna........


mbl.is Vandamál utan vallar ástæðan fyrir brotthvarfi Eiðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ætti Eiður Smári ekki bara að sækja um stjóra KSÍ???

Sigurður I B Guðmundsson, 24.11.2021 kl. 10:41

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hann yrði örugglega ekki verri en aðrir..........

Jóhann Elíasson, 24.11.2021 kl. 11:23

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nú er komið í ljós að ákvörðunin um að segja Eiði Smára upp störfum var tekin í samráði við Arnar Þór Viðarsson og þá kemur upp spurningin HVORT HONUM HAFI KANNSKI FUNDIST AÐ EIÐUR SMÁRI "SKYGGÐI" OF MIKIÐ Á HANS PERSÓNU, ÞVÍ ÞAÐ VAR OFTAST TEKIÐ SJÓNVARPSVIÐTAL VIÐ EIÐ SMÁRA??????????

Jóhann Elíasson, 24.11.2021 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband