ÞVÍLÍKIR "NAGLAR" SEM ÞESSIR DRENGIR ERU...............

Það er alveg með ólíkindum að þeir skyldu geta haldið þessum "hlunkum" niðri, sem er afrek út af fyrir sig, en að vinna þá og þess fyrir utan með 20.000 brjálaða stuðningsmenn Ungverjanna á móti sér, er eitthvað almesta afrek sem hægt er að hugsa sér.  Eini maðurinn sem ekki náði sér á strik í Íslenska liðinu var Aron Pálmarsson en allir aðrir voru óaðfinnanlegir og verð ég að segja að ég hefði viljað að Guðmundur þjálfari hefði kippt Aroni útaf og sett Ólaf Guðmundsson meira inn.  En sigur hafðist og má segja að Björgvin Páll hafi siglt sigrinum í höfn........ 


mbl.is „Þetta er bara rétt að byrja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Maður er enn að jafna sig. Þetta eru ekki bara naglar heldur stálnaglar!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 18.1.2022 kl. 23:28

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Aron veit það sjálfur og tuktar sjalfan sig til fyrir næsta leik. Annars var gott að heyra i þrieykinu D.Ó.L. í sjónvarpssal,þeir lesa leikinn og skýra fyrir okkur áhorfendum brot sem manni er ekkert um, enda margreyndir atvinnumenn sem leikmenn og þjálfarar,Ekki ónýtt að  eiga Einar lýsandi leiknum einn af þeim bestu fyrri ára.- Ég hefði líka viljað hvila Aron eitthbvað en Ólafur safnar á meðan eldheitum hæfileikaþrumum sínum.

Helga Kristjánsdóttir, 18.1.2022 kl. 23:33

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Sigurður, ég tek sko undir hvert orð hjá þér og hvílíkar taugar há þeim á lokametrunum að standast árásir Ungverjanna o þar var Björgvin Páll, að öðrum ólöstuðum, alveg í sérflokki.........

Jóhann Elíasson, 19.1.2022 kl. 02:13

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Helga, þessir þrír verða aldrei "toppaðir" og það er, eins og þú segir, algjör unun að  heyra þá lýsa leiknum og skilningurinn sem þeir hafa er alveg rosalegur.  Eitt er að hafa góðan skilning á leiknum og annað er að koma þeim skilningi frá sér á mannamáli, sem þeir gera frábærlega.  Já Einar Örn er stórkostlegur líka.  Miðað við hvað  leikurinn var mikilvægur fannst mér að Guðmundur hefði átt að bregðast fyrr við því að Aron "klikkaði" en það getur oft verið einfalt að segja þetta eftirá heldur en að taka ákvarðanir á staðnum.  En í lokin vil ég RÓSA DÓMURUM leiksins en þeir voru MJÖG GÓÐIR og höfðu GÓÐ TÖK á leiknum en það hefði verið auðvelt fyrir þá að detta í "HEIMADÓMGÆSLUGÍRINN" en það gerðu þeir ekki heldu dæmdu þeir leikinn MJÖG VEL................

Jóhann Elíasson, 19.1.2022 kl. 02:35

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Holland-Ísland var ekkert smá spennandi og madur varla búin ad jafna sig thegar thessi leikur kom.

Raddbondin farin í bili og vonandi komin aftur fyrir thann naesta.laughinglaughing

Sigurður Kristján Hjaltested, 19.1.2022 kl. 16:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband