SAMI "MEIRIHLUTI" = ÁFRAMHALD Á FÓLKSFLÓTTA ÚR REYKJAVÍK.......

Ætlar fólk virkilega að kjósa þetta yfir sig aftur?  Verði það svo þá er ég alveg hættur að vorkenna Reykvíkingum,því þeir fá bara í hausinn akkúrat það sem þeir vilja sjálfir.  Það er alveg stórkostlegt að hugsa til þess að "LANDRÁÐAFYLKINGIN" lagði mikið á sig til þess að Landspítali Háskólasjúkrahús yrði reist á umferðareyju á Hringbrautinni og ein helstu rökin fyrir því var NÁLÆGÐIN við Reykjavíkurflugvöll.  Svo þegar það staðsetning var í höfn, þá fara Dagur og félagar að vinna að því að flugvöllurinn verði annars staðar ÞÁ ALLT Í EINU SKIPTI NÁLÆGÐIN VIÐ LANDSPÍTALANN ENGU EINASTA MÁLI?  En landsmenn eru fljótir að gleyma og menn virðast komast upp með það endalaust að troða "kosningaloforðum" og oft á tíðum eru sömu kosningaloforðin ENDURNÝTT kjörtímabil eftir kjörtímabil og menn eru svo heiladauðir að þeir kjósa þessa sömu "LOFORÐAKÓNGA/DROTTNINGAR" með bros á vör kjörtímabil eftir kjörtímabil.... 


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn í borginni skreppur saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góð upprifjun Jóhann, -svo fór silfurskeiðungurinn úr sjálfstæðisflokksnum með afsalið af flugvallarlandinu til borgarlínu slekrisins. Og nú móast gölturinn úr framsóknarfjósinu við í smáskika í Skerjafirðinum, -svona í smá stund korteri fyrir kosningar.

Flissandi fábjánar flögrar um allt land þessa dagana. Þetta kallast pólitík til kosningabrúks. Rétt á meðan eru minnislausir kjósendurn eins og dáleiddir hænur.

Magnús Sigurðsson, 10.5.2022 kl. 15:59

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Fólk lét sprauta úr sér það litla vit sem var eftir og sjálfstæði. Nú er spurning hvort komandi kreppa muni eitthvað vekja fólk til umhugsunar eða hvort það haldi áfram að hengja bakara fyrir smið, að kenna Sjálfstæðismönnum og öðrum hægrimönnum um það sem jafnaðarmennirnir gera, glóbalistarnir og vinstrimennirnir.

Við erum jafn þrælkuð og þegar við vorum þegnar Dana. Það þarf nýja sjálfstæðisbaráttu, finnst mér. 

Dagur vill halda áfram með rándýrar fyrirætlanir á meðan verð á nauðsynjum fer hækkandi. Ég tek undir með þér. Ef hægrimenn verða ekki kosnir til að hafa áhrif, þá er fólki ekki viðbjargandi. 

Ingólfur Sigurðsson, 10.5.2022 kl. 15:59

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þekki fólk á Selfossi sem vilja endilega að Dagur haldi áfram að skemma Reykjavík því þá heldur fólk áfram að flytja þangað!

Sigurður I B Guðmundsson, 10.5.2022 kl. 16:06

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Magnús, gullfiskaminnið hjá Íslenskum kjósendum ríður ekki við einteyming.  Það er með ólíkindum að fylgjast með KOSNINGALOFORÐAFLAUMI frambjóðenda en þeir nefna það hvergi hvernig á að FJÁRMAGNA þessi ósköp og svo gleypa kjósendur þetta kjaftæði alveg hrátt.....

Jóhann Elíasson, 10.5.2022 kl. 16:51

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Ingólfur lastu rannsóknina um það að heili "bólusettra" hafði minnkað marktækt. cool wink  Ég vil nú taka dýpra í árina því ég held að "séum mun meira undirokruð núna heldur en undir Dönum".

Verði Dagur B. áfram við völd í Reykjavík fer borgin á hausinn og ekki veit ég hvort nágrannasveitarfélögin hafa burði til björgunar......

Jóhann Elíasson, 10.5.2022 kl. 17:00

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég hef heyrt að Sjálfstæðismenn í Árborg vilji reisa styttu af Degi B. Sigurður en ég vona að þeir vilji Reykjavík ekki það illt að hann verði borgarstjóri áfram.... cool

Jóhann Elíasson, 10.5.2022 kl. 17:05

7 Smámynd: Grímur Kjartansson

Undarlegast er að óánægða fólkið sem alltaf vill breytingar flykkist ilum Pírata

en eitt af því fá sem þeir hafa stefnu í er að hafa Dag áfram sem borgarstóra 

Grímur Kjartansson, 10.5.2022 kl. 20:30

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Grímur, getur verið að það fólk sem flykkir sér um Píratana, viti bara ekki hvað það vill???????????

Jóhann Elíasson, 10.5.2022 kl. 20:49

9 Smámynd: Grímur Kjartansson

Hafandi lenti í "þjóðskrárútaki" og verið spurður af einhvejum unglingum sem lesa samviskusamlega upp spuringar af blaði fyrir fram það

þá skil ég unglingana vel  - svo er alltaf þessi pressa frá háværu "vinunum" um að vera cool

en enginn sér hvað þú kýst í kjörklefanum líkt og margoft hefur komið fram í lokatölum hjá Framsókn

Grímur Kjartansson, 10.5.2022 kl. 21:29

10 identicon

Sæll Jóhann Stýrimaður æfinlega; líka sem og þið aðrir gestir Jóhanns, ekki síður !

Skyldi nokkurn undra; piltar ?

Bragi Páll Sigurðarson; rithöfundur og mannlífs flóru grúskari útnefndi:: með rjettu   Bjarna Benediktsson KONUNG þjófanna, á Austurvallar fundinum þar syðra, s.l. Laugardag (7. Maí).

Hildur blessunin Björnsdóttir; er einungis leiksoppur grimmra illráða svika vefja Engeyinga - Samherja Mafíunnar auk þess, sem hún er eins og viljalaust verkfæri, í lúkum Pírata og Samfylkingar og Vinstri græna ófögnuðarins í borginni:: sbr. Borgarlínu kjaftæðið, auk svo margs annarrs.

Það er fagnaðarefni; nái Sjálfstæðisflokkurinn með öfugnefninu, að skreppa svo saman að hann nái að týnast helzt í flokka flórunni, eins og SVIK hans og PRETTIR unadanfarinna ára og áratuga vottfesta hvað bezt - jafnt: á landsvísu, sem og á sveitastjórna stíginu.

Hitt er annað; að fylgisaukning Pírata og Samfylkingar uppsópsins í Reykjavík er með öllu óskiljanleg, í ljósi þeirrar úrkynjunar og fáránleika, sem þetta lið stendur fyrir, dægrin löng.

Jón Þór Ólafsson; Malbikunar frömuður. og fyrrum alþingismaður virðist vera sá eini Píratanna, sem einhverja lágmarks jarðtengingu hefur sýnt, sbr. Orkupakka III andstöðu hans í þinginu í September árið 2019, eins og við munum hvað gleggzt.

Með beztu kveðjum; sem endranær, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.5.2022 kl. 23:49

11 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Ég hef bara aldrei séd annad eins rusl og er í bodi í thessum kosningum.

Flest af thessu fólki hefur aldrei unnid handtak en thykist vita allt.

Sorglegt fyrir Reykvíkinga. En thegar allt fer til andskotans, thá erum vid

hin sem vörum vid thessari ógaefu sem Reykjavík stefnir í nógu gód til ad borga.

Sigurður Kristján Hjaltested, 11.5.2022 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband